Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar

Deildarstjóri umbóta og upplýsingamála

​​​​Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur leitar að öflugum leiðtoga í nýtt starf deildarstjóra á skrifstofu skipulags- og byggingarmála.

Deildin ber ábyrgð á upplýsingakerfum, verkferlum og að innleiða umbætur og lausnir er varða skipulags og byggingarmál (s.s. landupplýsingakerfi, borgarvefsjá, umsóknarkerfi vegna framkvæmdaleyfa, staðlaðra umsagna o.fl.). Stýrir fræðslu og upplýsingagjöf til hagaðila varðandi ferli skipulags- og byggingarmála og afgreiðir erindi þar um. Heldur utan um grenndarkynningar, smærri deiliskipulagsbreytingar, umsagnir til opinberra aðila og almenn afgreiðslumál skrifstofunnar. Ber ábyrgð á að málsmeðferð, upplýsingagjöf og áherslur séu í samræmi við stefnu borgaryfirvalda varðandi stafrænar lausnir og í takt við vandaða stjórnsýsluhætti og markmið sviðsins um framúrskarandi þjónustu.

Leitað er að framsæknum einstaklingi með ríka forystu- og samskiptahæfileika, frumkvæði og þjónustumiðaða hugsun sem hefur brennandi áhuga á að innleiða umbætur og nýjar tæknilausnir í þjónustu sviðsins í skipulags og byggingarmálum.

Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í faglegu starfsumhverfi þar sem áhersla er á þverfaglega teymisvinnu, góða þjónustu og virðingu fyrir umhverfinu. Næsti yfirmaður er skrifstofustjóri skipulags-og byggingarmála.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á faglegu starfi, uppbyggingu og skipulagi deildar og að málsmeðferð og áherslur verkefna séu í samræmi við stefnu borgaryfirvalda í umhverfis- og skipulagsmálum.
  • Ábyrgð á umbótaverkefnum og eflingu stafrænna þjónustuleiða.
  • Leiðandi hlutverk við þróun verkefnamiðaðrar teymisvinnu.
  • Þátttaka í stefnumótun og áætlanagerð skrifstofu skipulags og byggingarmála.
  • Forsvar fyrir þjónustu, fagleg stjórnun mannauðs, fjármála, skipulags og daglegra verkefna
  • auk ábyrgðar á rekstri.
  • Leiðir áætlanagerð, skipulagningu og markmiðasetningu og tryggir að unnið sé í samræmi við stefnu, áherslur og markmið umhverfis- og skipulagssviðs.
  • Samskipti og samráð við íbúa, hagsmunaaðila, ráðgjafa og stofnanir, nefndir og ráð, skrifstofur og deildir innan og utan borgarkerfis.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf á framhaldsstigi sem nýtist í starfi.
  • Viðbótamenntun á sviði stjórnunar, verkefnastjórnunar eða opinberrar stjórnsýslu kostur.
  • Farsæl reynsla á starfssviðinu áskilin.
  • Hæfni til að setja fram skýr markmið, forgangsraða verkefnum og fylgja eftir.
  • Farsæl reynsla af stefnumótun, verkefnastjórnun og innleiðingu umbótaverkefna.
  • Mjög góð tölvu- og tæknikunnátta og umbótamiðuð hugsun varðandi tæknilausnir.
  • Góðir hæfileikar til samskipta og samvinnu og hæfni til að skapa öfluga liðsheild.
  • Greiningar- og skipulagshæfni, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun.
  • Reynsla af stjórnun og áætlanagerð og þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur.
  • Þekking á skipulags- og byggingarlögum og viðkomandi reglugerðum er kostur.
  • Íslenskukunnátta C1-C2 skv. samevrópskum tungumálaramma og enskukunnátta B2-C1.
Auglýsing birt13. júní 2025
Umsóknarfrestur30. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar