

Nefndarmaður í yfirskattanefnd
Fjármála- og efnahagsráðuneytið auglýsir lausa stöðu nefndarmanns í aðalstarfi hjá yfirskattanefnd. Nefndarmenn skulu fullnægja skilyrðum 85. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, um embættisgengi ríkisskattstjóra. Fjármála- og efnahagsráðherra skipar í embættið til sex ára í senn.
Yfirskattanefnd starfar samkvæmt lögum nr. 30/1992, um yfirskattanefnd, og úrskurðar í ágreiningsmálum vegna skatta, gjalda, sekta og skattstofna, þar með talin rekstrartöp, svo og vegna annarra ákvarðana skattyfirvalda, eftir því sem nánar er ákveðið í lögum. Yfirskattanefnd er æðsti úrskurðaraðili innan stjórnsýslunnar í þeim málum sem í valdsvið hennar eru lögð. Í yfirskattanefnd sitja fimm eða sex menn sem skipaðir eru til sex ára í senn og hafa fjórir nefndarmanna starfið að aðalstarfi.
- Úrskurða í kærumálum vegna skatta, gjalda og sekta og annarra ákvarðana skattyfirvalda samkvæmt lögum.
- Úrskurða í kærumálum vegna sektarákvarðana ársreikningaskrár.
- Úrskurða í kærumálum um ágreining innflytjenda og tollyfirvalda í tollamálum.
- Úrskurða í ágreiningsmálum vegna ákvarðana sýslumanna um erfðafjárskatt og stimpilgjald.
- Úrskurða vegna sektarákvarðana skattrannsóknarstjóra vegna meintra brota á skattalögum, lögum um bókhald og lögum um ársreikninga.
- Úrskurða um fjárhæð endurgreiðslu til erlendra kvikmyndaframleiðenda og um fjárhæð endurgreiðslu til bókaútgefenda.
- Próf í lögfræði, hagfræði eða viðskiptafræði eða próf til löggildingar til endurskoðunarstarfa. Víkja má frá þessu ákvæði ef umsækjandi hefur aflað sér víðtækrar sérmenntunar eða sérþekkingar um skattalöggjöf og framkvæmd hennar.
- Víðtæk þekking og reynsla af stjórnsýslurétti.
- Reynsla af úrskurðarstörfum er kostur.
- Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti er skilyrði.
- Skipulagshæfni, öguð og sjálfstæð vinnubrögð.
- Mjög góð greiningarhæfni, gagnrýnin og lausnamiðuð hugsun.
Til frekari hæfisskilyrða vísast til 85. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.













