Landssamband veiðifélaga
Landssamband veiðifélaga
Landssamband veiðifélaga

Framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga

LANDSSAMBAND VEIÐIFÉLAGA LEITAR AÐ FRAMKVÆMDASTJÓRA

Landssamband veiðifélaga leitar að metnaðarfullum og framsýnum einstaklingi í starf framkvæmdastjóra. Leitað er að öflugum einstaklingi í fullt starf þar sem reynir m.a. á samskiptahæfni og frumkvæði.

Um áhugavert starf er að ræða þar sem viðkomandi getur haft raunveruleg áhrif á framtíð íslenskra veiðimála og verndun ferskvatnsstofna. Verkefni eru fjölbreytt og krefjast samstarfs við hóp sérfræðinga, félaga og stofnana. Vinnuumhverfi er sveigjanlegt og möguleiki á að þróa starfið til framtíðar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg stjórnun og rekstur skrifstofu
  • Hagsmunagæsla fyrir veiðifélög
  • Samskipti við aðildarfélög, stjórnvöld, fjölmiðla og innlendar og erlendar stofnanir
  • Mótun stefnu og framtíðarsýnar um stangveiði og fiskvernd
  • Umsjón með skipulagi málefna- og kynningarstarfs
  • Eftirfylgni með stefnu og ákvörðunum stjórnar og samþykktum aðalfunda
  • Ábyrgð á fjármálum og rekstri
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi  – lögfræðimenntun er kostur
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og framúrskarandi samskiptahæfileikar
  • Reynsla af hagsmunagæslu og opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Þekking og áhugi á stangveiði, náttúruvernd og umhverfismálum er mikill kostur
  • Færni í að tjá sig í ræðu og riti
  • Góð enskukunnátta
Um Landssamband veiðifélaga

Landssamband veiðifélaga er landssamtök allra veiðifélaga á Íslandi og starfar á grundvelli 5. mgr. 4. gr. laga um lax- og silungsveiði, nr. 61/2006.

Landssamband veiðifélaga var stofnað árið 1958 og hlutverk þess er að gæta sameiginlegra hagsmuna veiðifélaga á Íslandi. Hlutverk þess er einnig að koma fram fyrir hönd þeirra gagnvart hinu opinbera, efla starfsemi veiðifélaga og auka samstarf þeirra, stuðla að bættri stjórn veiðimála og auka þekkingu á málefnum veiðifélaga.

Umsóknarfrestur er til og með 23. júní 2025.

Vinsamlegast sendið umsóknir á Jón Helga Björnsson, formann Landssambands veiðifélaga, á netfangið [email protected]. Hann veitir einnig allar nánari upplýsingar í tövupósti eða í síma 893-3778.

Auglýsing birt10. júní 2025
Umsóknarfrestur23. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar