

Framkvæmdastjóri Frama
Frami leitar að framkvæmdastjóra til að leiða uppbyggingu fyrirtækisins og opna fyrir ný tækifæri til vaxtar. Leiðarljós Frama er að gera nám aðgengilegt fyrir alla með hágæða framleiðslu og nútímalegri miðlun kennsluefnis.
Helstu verkefni
-
Stýra daglegum rekstri félagsins
-
Þróa og opna ný námskeið í samstarfi við kennara og framleiðendur
-
Umsjón með markaðsstarfi, fyrst og fremst á netinu
-
Sölustarf gagnvart stjórnendum á vinnustöðum
-
Vöru- og viðskiptaþróun auk stefnumótunar með stjórn
Hæfniskröfur
-
Reynsla af rekstri eða verkefnastjórnun (frumkvöðlastarf er kostur)
-
Þekking og reynsla af sölu og stafrænni markaðssetningu
-
Færni í verkstjórn efnisgerðar (t.d. námskeið, hlaðvörp, myndbönd, textar)
-
Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og metnaður til að leiða vöxt fyrirtækis
-
Góð samskipta- og skipulagshæfni
Nánar um starfið og ferlið
Um er að ræða fullt starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í ágúst, en það er umsemjanlegt.
Umsóknarfrestur er til og með 30. júní. Sótt er um starfið í gegnum umsóknarkerfi Alfreðs.
Við skoðum umsóknir jafnóðum og hvetjum áhugasama til að sækja um áður en frestur rennur út.
