

Skólaritari í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli óskar eftir skólaritara
Í Álfhólsskóla eru um 600 nemendur í 1. til 10. bekk og um 130 starfsmenn. Skólinn byggir á langri hefð fyrir framsæknu og árangursríku skólastarfi þar sem áhersla er lögð á þátttöku í þróunarverkefnum. Í Álfhólsskóla er skapandi starf með fjölbreyttum kennsluháttum og nám við hæfi hvers og eins. Í skólanum eru starfrækt sérhæfð námsver fyrir einhverfa nemendur.
Einkunnarorð skólans eru: menntun – sjálfstæði - ánægja.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tekur þátt í daglegum rekstri á skrifstofu skólans
- Annast móttöku gesta ásamt símavörslu, skiptiborð og innanhússkerfi skólans
- Annast margs konar upplýsingagjöf til nemenda og foreldra í daglegu skólastarfi
- Hefur eftirlit með tækjum á skrifstofu og í vinnuaðstöðu starfsmanna og er tengiliður skólans varðandi þjónustuaðila vegna þeirra
- Umsjón með vinnuaðstöðu starfsmanna í stjórnunarálmu
- Sér um innkaup á rekstrarvörum fyrir kennara skólans og skrifstofu
- Annast innritun og nemendaskrá í skóla
- Hefur umsjón með skjalavörslu og starfsmannaskrá
- Hefur umsjón með upplýsingaforritinu Mentor og gögnum því tengdu
- Skipuleggur forföll í samvinnu við stjórnendur og skráir í Vinnustund
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur ritara
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf eða sambærileg menntun
- Viðbótarnám sem nýtist í starfi æskilegt
- Góð íslenskukunnátta og önnur tungumálakunnátta æskileg
- Góð tölvukunnátta, auk þekkingar á skýrslugerð
- Reynsla af bókhaldskerfum er kostur
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfileikar
- Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
- Reynsla af skólastarfi og skrifstofustarfi er kostur
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Um er að ræða 80 - 100% framtíðarstarf. Vinnutími er frá 7:45.
Ráðið verður í starfið frá 1. ágúst n.k.
Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila sakavottorði.
Tekið er á móti umsóknum í gegnum ráðningarvef Alfreðs.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Kópavogsbæjar við ráðningu í starfið.
Upplýsingar gefur Sigrún Bjarnadóttir í síma 441 3800.
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.













