BSRB
BSRB

Skrifstofustarf

BSRB leitar að öflugum og þjónustuliprum einstaklingi til að sinna fjölbreyttum og krefjandi verkefnum í hringiðu starfsemi bandalagsins.

Ef þú hefur gaman af skipulagi, samskiptum og fjölbreyttum verkefnum, gæti þetta verið rétta tækifærið fyrir þig.

Sem skrifstofufulltrúi BSRB verður þú mikilvægur hlekkur í daglegum rekstri skrifstofunnar og þjónustu við bæði starfsfólk og gesti. Starfið er fjölbreytt, gefandi og krefst bæði nákvæmni og lipurleika í samskiptum. Tækifæri til eflast og þróast í starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ritun fundargerða stjórnar BSRB.
  • Skipulag og bókun funda.
  • Greiðsla reikninga.
  • Umsjón með netfangalistum og rafrænum undirritunum.
  • Skráning og frágangur mála í skjalavistunarkerfi.
  • Umsjónum með innkaupum fyrir skrifstofu.
  • Móttaka gesta, símsvörun og almenn skrifstofuþjónusta.
  • Önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfirmann.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf.
  • Reynsla af sambærilegum verkefnum, sem nýtist i starfinu.
  • Frumkvæði og metnaður og ögun í vinnubrögðum.
  • Rík þjónustulund og áhugi á að starfa í þjónustuhlutverki.
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
  • Reynsla af málaskráningu í skjalavistunarkerfi.
  • Mjög góð tölvufærni og færni til að tileinka sér tækninýjungar.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta i ræðu og riti.
Auglýsing birt12. júní 2025
Umsóknarfrestur29. júní 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Grettisgata 89, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)