
Sjúkratryggingar Íslands
Sjúkratryggingar er lykilstofnun í íslensku heilbrigðiskerfi. Við tryggjum réttindi sjúkratryggðra og aðgengi að góðri og hagkvæmri heilbrigðisþjónustu með það markmið að leiðarljósi að vernda heilbrigði og jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag.
Sjúkratryggingar vinna í verkefnamiðuðu vinnuumhverfi þar sem rík áhersla er lögð á góðan aðbúnað starfsmanna. Boðið er upp á sveigjanlegan vinnutíma, fjarvinnu allt að 2 daga í viku auk þess sem starfsfólk nýtur hlunninda á borð við íþróttastyrk og samgöngustyrk vegna vistvænna samgangna. Stofnunin hefur undanfarin ár tekið þátt í verkefninu um styttingu vinnuvikunnar og er vinnuvikan 36 stundir.
Lögfræðingur á sviði trygginga
Sjúkratryggingar auglýsa starf lögfræðings á sviði trygginga. Um er að ræða starf í teymi sem sér um ákvarðanatöku um bótarétt og útreikning bóta vegna tjónsatvika í heilbrigðisþjónustu, ásamt lögfræðilegri ráðgjöf á fleiri sviðum Sjúkratrygginga.
Sjúkratryggingar eru lykilstofnun í íslensku heilbrigðiskerfi sem tryggir réttindi sjúkratryggðra og aðgengi að góðri og hagkvæmri heilbrigðisþjónustu með það markmið að leiðarljósi að vernda heilbrigði og jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu.
Sjúkratryggingar vinna í verkefnamiðuðu vinnuumhverfi þar sem rík áhersla er lögð á góðan aðbúnað. Boðið er upp á sveigjanlegan vinnutíma auk þess sem starfsfólk nýtur hlunninda á borð við íþróttastyrk og samgöngustyrk vegna vistvænna samgangna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Málsmeðferð, ákvarðanataka um bótarétt og útreikningur bóta vegna sjúklingatryggingar
- Lögfræðileg ráðgjöf á sviði sjúkratrygginga
- Ritun greinargerða til úrskurðarnefndar velferðarmála vegna kærumála
- Leiðbeiningar og ráðgjöf til starfsfólks og viðskiptavina
Menntunar- og hæfniskröfur
- Fullnaðarnám í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi
- Áhersla er lögð á góða samskiptahæfileika, jákvætt viðmót og ríka þjónustulund
- Góð þekking á stjórnsýslurétti og skaðabótarétti vegna líkamstjóna, þ.m.t. á uppgjöri bóta samkvæmt skaðabótalögum
- Starfsreynsla sem nýtist í starfi
- Mjög gott vald á íslensku í rituðu og mæltu máli
- Mjög gott vald á ensku og þekking á Norðurlandamáli
- Góð tölvukunnátta (tölvulæsi, geta til að vinna í margvíslegum kerfum)
- Skipulagshæfileikar, drifkraftur og afkastageta
Auglýsing birt3. júní 2025
Umsóknarfrestur13. júní 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Vínlandsleið 16, 113 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (9)

Réttindagæslumaður fatlaðs fólks - Mannréttindastofnun Íslands
Hagvangur

Lögfræðingur
Kaldvík

Lögfræðingur í persónutjónum
Vörður tryggingar

Internal Market Affairs Officer (Transport)
EFTA Surveillance Authority

Deildarstjóri umbóta og upplýsingamála
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Sveitarfélagið Vogar

Myllubakkaskóli - Skólastjóri
Reykjanesbær

Legal Officer in the EEA Coordination Division (ECD)
EFTA Secretariat

Gjaldkeri/Bókhald/Skrifstofufulltrúi
Vopnafjarðarhreppur