Air Atlanta Icelandic
Air Atlanta Icelandic
Air Atlanta Icelandic

Structural Repair Engineer

Verkfræðideild (e. Engineering) Air Atlanta leitar að öflugum aðila til að ganga til liðs við hópinn og halda áfram spennandi uppbyggingu deildarinnar.

Í verkfræðideildinni starfar samheldinn hópur sem sinnir eftirliti með viðhaldi og lofthæfi flugvélaflotans í samráði við flugvélaframleiðendur og aðra samstarfaðila. Í dag er Air Atlanta með Boeing 747 og Boeing 777 í rekstri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirferð og utanumhald á viðgerðar gögnum
  • Umsjá og aðstoð við stærri viðgerðir
  • Búa til, uppfæra og hafa yfirumsjón með öll viðgerðum
  • Útbúa viðhaldsleiðbeiningar
  • Innleiðing á nýjum flugvélum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Próf í flugvirkjun, verkfræði eða sterkur tæknilegur bakgrunnur
  • Reynsla í viðhaldi flugvéla er kostur
  • Mjög góð ensku- og tölvukunnátta
  • Öguð og vönduð vinnubrögð
  • Frumkvæði og sjálfstæði
  • Sterk öryggisvitund

 

Auglýsing birt4. febrúar 2025
Umsóknarfrestur17. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Hlíðasmári 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar