

Störf í lyfjapökkun/Operator in packaging
Coripharma í Hafnarfirði leitar að jákvæðum og ábyrgðarfullum einstaklingum í teymi í pökkunardeildar á framleiðslusviði. Við leitum að einstaklingum sem geta unnið sjálfstætt jafnt sem í teymi. Nýtt starfsfólk öðlast skriflega og verklega þjálfun í verkefnum sem snúa að lyfjapökkun og góðum framleiðsluháttum í lyfjagerð (cGMP).
Um er að ræða vaktavinnu á þrískiptum vöktum, þar sem unnið er á dag-, kvöld- og næturvöktum, frá mánudegi til föstudags.
Við leitum að fólki bæði í sumarstörf og framtíðarstörf.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Töflum og hylkjum er pakkað í glös og þynnur samkvæmt ströngustu gæðakröfum
- Þrif og eftirlit með pökkunarvélum og pökkunarsvæði
- Stillingar og breytingar á tækjabúnaði
- Sýnataka og skjalfesting
- Merkingar á vörum til útflutnings
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Þekking á framleiðslu eða sambærilegum iðnaði er kostur
- Heiðarleiki og stundvísi
- Skipulögð, nákvæm og fagleg vinnubrögð
- Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót
- Góð enskukunnátta
Coripharma er íslenskt fyrirtæki með um 215 starfsmenn, sem byggir á traustum grunni lyfjaþróunar og framleiðslu á Íslandi. Félagið sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og útflutningi samheitalyfja ásamt því að sinna verktökuframleiðslu fyrir önnur lyfjafyrirtæki. Frá því að félagið hóf starfsemi árið 2018 hefur það hafið framleiðslu á 22 lyfjum og er með 21 nýtt lyf í þróun. Nánari upplýsingar um Coripharma má finna á www.coripharma.is
//
Coripharma in Hafnarfjörður is looking for operators for the packaging team in production. We are looking for individuals with positive attitude and good work ethics, who can work independantly as well as collaborate in team. New employees will receive training in tasks and processes related to packaging of pharmaceuticals and good manufacturing practice (cGMP).
This is a shift-based position with a three-shift rotation, including day, evening, and night shifts from Monday to Friday.
We are hiring for both summer positions and long-term roles.
Tasks and responsibilities
- Packaging of tablets and capsules in blisters, cartons and bottles according to quality standards
- Cleaning of working areas in packaging and line clearance
- Taking care of machine settings
- Perform appropriate testing during the packaging process and fill in documents
- Prepare goods for export
Education and qualification requirements
- Education and experience that is relevant for the role
- Experience of manufacturing/packaging or similar industry is an advantage
- Honesty and punctuality
- Organized and disciplined working methods
- Positive attitude and good communication skills
- Good English skills
Coripharma is an Icelandic company with approximately 215 employees, built on a strong foundation of pharmaceutical development and manufacturing in Iceland. The company specializes in the development, production, and export of generic medicines, as well as contract manufacturing for other pharmaceutical companies. Since its establishment in 2018, Coripharma has launched the production of 22 medicines and has 21 new medicines in development. For more information about Coripharma, visit www.coripharma.is.












