

Starf í boði í Reykjanesbæ
Urta Islandica er fjölskyldufyrirtæki sem framleiðir jurtasalt, jurtae, jurtasýróp, sultur og súkkulaði úr íslenskum hráefnum.
Í boði er framtíðarstarf fyrir rétta aðila við framleiðslu á vörum á starfsstöðinni okkar að Básvegi 10, Reykjanesbæ
Helstu kröfur okkar til þín eru stundvísi, snyrtimennska, kostur að þú hafir unnið við framleiðslu áður, góð íslenskukunnátta og getir unnið sem hluti af teymi.
Starfið felur í sér framleiðslu og pökkun á framleiðsluvörum Urta Islandica. Frágangi og þrifum ásamt tilfallandi verkefnum.
Verður að geta hafið störf sem fyrst.
Hafa áhuga á framleiðslu matvara
Kann að fara efitr uppskriftum
Þarf að hafa gott vald á bæði íslensku og ensku
Vera góð/góður í mannlegum samskiptum
Heilsuhraust/ur og stundvís
Sjálfstæð/ur í starfi
Nákvæm/ur í vinnubrögðum
Geta skráð í tölvukerfi
Geta til að lyfta a.m.k 20 kg
Reyk- og tóbaksleysi er kostur
Umsækjendur þurfa að vera orðnir 25 ára












