Kirkjugarðar Reykjavíkur
Kirkjugarðar Reykjavíkur
Kirkjugarðar Reykjavíkur

Starf á sviði umhirðu og jarðsetninga

Kirkjugarðar Reykjavíkur leita að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi í framtíðarstarf á sviði umhirðu og jarðsetninga.

Starfið felur í sér vinnu við almenna umhirðu garðanna og fjölbreytt verkefni sem unnin eru í teymum sem og sjálfstætt.

Um fullt starf er að ræða og er vinnutími frá kl. 8 - 16 mánudag til fimmtudaga en föstudaga er unnið til kl. 12 á hádegi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Viðhald og gróðursetning í görðum

Snyrting og frágangur í görðum, hellulagning, sláttur og trjáklippingar

Aðstoð við grafartekt og frágang

Tilfallandi samskipti við gesti sem koma í garðana

Önnur tilfallandi störf

Í starfinu felst ábyrgð á að þjónustu sé sinnt á faglegan og nærgætinn hátt og að öryggistöðlum sé fylgt við dagleg störf.

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntun á sviði garðyrkju/skrúðgarðyrkju kostur, eða sambærileg menntun.

Vinnuvélaréttindi I kostur  

Starfið gerir kröfur um handlægni og fumkvæði.

Færni í mannlegum samskiptum, jákvæðni og geta til að vinna í teymum sem og sjálfstætt.

Um Kirkjugarða Reykjavíkur

Kirkjugarðar Reykjavíkur er lifandi og skemmtilegur vinnustaður þar sem um 30 starfsmenn starfa. Fyrirtækið er í stefnumótunarferli og því er tækifæri til að hafa áhrif á uppbyggingu og menningu fyrirtækisins. 

Framtíðarsýn Kirkjugarða Reykjavíkur er að vera garður allra þeirra sem vilja kyrrð og ró í umhverfi sem einkennist af hlýju, umhyggju og kærleika. Kirkjugarðar Reykjavíkur hafa opinn faðm gagnvart öllum þeim sem vilja kveðja ástvini sína og varðveita minningar. 

Gildi Kirkjugarða Reykjavíkur leggja grunn að góðri menningu innan garðanna, styðja við ákvaðanatöku, skapa samheldni meðal starfsfólks og byggja upp traust út í samfélaginu. 

Gildin okkar eru VIRÐING - UMHYGGJA - FAGMENNSKA - LIÐSHEILD

Heimasíða Kirkjugarða Reykjavíkur er: https://www.kirkjugardar.is/

 

 

Upplýsingar

Nánari upplýsingar um starfið veitir Helena Sif Þorgeirssdóttir sviðstjóri umhirðu og jarðsetninga hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur helena@kirkjugardar.is

Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2025

Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt6. nóvember 2024
Umsóknarfrestur1. desember 2024
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Stundvísi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar