Stafrænn markaðssérfræðingur
Við leitum að hugmyndaríkum og árangursdrifnum Stafrænum markaðssérfræðingi (e. Digital Marketing Specialist) til að ganga til liðs við markaðsdeild Wise.
Áhersla er lögð á framúrskarandi hæfni til að miðla efni í máli og mynd, gott auga fyrir framsetningu og hönnun ásamt ríkri samskipta- og aðlögunarfærni.
Hlutverkið gerir kröfu á að viðkomandi búi yfir góðri færni í íslensku og ensku.
Helstu verkefni og ábyrgð
Viðkomandi mun koma að gerð og framkvæmd stafrænna markaðsherferða ásamt því að hafa umsjón með efnisgerð fyrir ytri miðla fyrirtæksins, taka þátt í hugmyndavinnu og að móta markaðsáherslur fyrirtækisins. Auk þess mun viðkomandi hafa aðkomu að öðrum skemmtilegum og krefjandi verkefnum innan markaðsdeildar.
- Stafræn markaðssetning og efnisgerð
- Samskipti við samstarfsaðila varðandi birtingar og gerð markaðsefnis
- Efnissköpun fyrir stafræna miðla fyrirtækisins, þ.e. samfélagsmiðla, vef og tölvupóst (e. content marketing)
- Markaðssetning með tölvupósti (e. email marketing)
- Stýra og hámarka sýnileika fyrirtækisins á samfélagsmiðlum
- Umsjón með efni á vef sem tekur mið af leitarvélabestun (SEO) og mælingar á frammistöðu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framúrskarandi hæfni til að miðla efni í máli og mynd
- Auga fyrir framsetningu og hönnun
- Góð samskipta- og aðlögunarfærni
- Sköpun og hugmyndauðgi
- Skipulögð og vönduð vinnubrögð
- Frumkvæði og kraftur til að hrinda hugmyndum í framkvæmd
- Reynsla og þekking á stafrænni markaðssetningu er skilyrði
- Reynsla af vefumsjónarkerfum, stjórnun samfélagsmiðla og einfaldri
myndvinnslu er mikill kostur - Menntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði markaðsmála eða í tengdum greinum