Viðskiptastjóri hjá Billboard og Buzz
Billboard og Buzz umhverfismiðlar leita að viðskiptastjóra á eina af tveimur söludeildum félagsins.
Við leitum að harðduglegri og ákveðinni manneskju sem nýtur þess að bera ábyrgð á þeim verkefnum sem hann/hún stýrir og vill hafa góð, árangurstengd laun. Viðkomandi verður að hafa brennandi áhuga á því að ná meiri árangri í lífi og starfi.
Í starfinu felst að vinna með markaðsstjórum og stjórnendum fyrirtækja og finna með þeim leiðir til að láta auglýsingamiðlana Billboard og Buzz skila sem bestum árangri í þeirra markaðsstarfi.
Ef þú nýtur þess að eiga í samskiptum við fólk, getur sagt frá skemmtilegum hlutum, og þú átt auðvelt með það að leita tækifæra og lausna, þá passar þú líklega í starfið.
Mikilvægir eiginleikar:
- Fullkomið vald á íslensku í töluðu og rituðu máli
- Heiðarleiki
- Dugnaður
- Nákvæmni í vinnubrögðum
- Brennandi áhugi á umhverfisauglýsingum og markaðssetningu
- Vilji til að tileinka sér nýja þekkingu og miðla henni
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með núverandi viðskiptatengslum og ábyrgð á að styrkja og þroska það samband.
- Umsjón með auglýsingaplönum viðskiptavina
- Öflun nýrra viðskiptatengsla.
- Útfæra góðar hugmyndir með viðskiptavinum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Þekking og áhugi á íslenskum auglýsingamarkaði
- Almenn tölvukunnátta
- Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
Fríðindi í starfi
Sími, tölva o.fl.
Auglýsing stofnuð19. júní 2024
Umsóknarfrestur1. júlí 2024
Laun (á mánuði)550.000 - 1.500.000 kr.
Tungumálahæfni
ÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Síðumúli 27, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiHeiðarleikiHreint sakavottorðJákvæðniMannleg samskiptiMetnaðurReyklausSamskipti í símaSamskipti með tölvupóstiSölumennskaStundvísiVandvirkniVinna undir álagiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Sölufulltrúi í verslun Tengis á Akureyri
Tengi
Það á að vera gaman í vinnunni...
Takk ehf
Afgreiðslustarf Skeifunni 7
KiDS Coolshop
Viðskiptastjóri
Icepharma
BYKO Akureyri: Sölufulltrúi í hólf & gólf
Byko
BYKO Akureyri: Sölufulltrúi í timbri og lögnum
Byko
Leitum að hressum söluráðgjöfum.
Tryggingar og ráðgjöf ehf.
Sölustarf hjá Coca-Cola á Íslandi
Coca-Cola á Íslandi
Útilíf Kringlunni og Smáralind - Fullt starf
Útilíf
Sölufulltrúi á Akureyri
Slippfélagið ehf
Growth Marketing Specialist
CCP Games
Sölu og þjónusturáðgjafi
Skeljungur ehf