Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Lækjarsel - Lækjarskóli 

Lækjarskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í 40 - 50% til lok skólaársins í frístundaheimilið Lækjarsel.

Um er að ræða starf sem felur í sér stuðning og aðstoð við nemendur í frístundaheimilinu Lækjarseli eftir hádegi alla virka daga. Eftir að hefðbundnum skóla lýkur geta nemendur í 1.- 4. bekk farið í frístundaheimilið Lækjarsel. Starfsemi Lækjarsels er í skólanum. Lækjarsel býður upp á fjölbreytt tómstundastarf og útiveru til klukkan 16:30, alla virka daga, óháð getu, þroska eða fötlun barna. Sérstök áhersla er lögð á að koma til móts við alla hópa.

Möguleiki er á starfi á leikjarnámskeiði næsta sumar.

Einkunnarorð Lækjarskóla eru ábyrgð, virðing og öryggi, og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæðan skólabrag.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Starfar á frístundaheimili í hinum ýmsu tómstundum
  • Tekur á móti nemendum og aðstoðar börn í leik og starfi
  • Starfar með nemendum með sértækan vanda
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af starfi með börnum er æskileg
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Almenn tölvukunnátta
  • Mikill áhugi og metnaður til að starfa með börnum
  • Uppbyggjandi í samskiptum, sveigjanleiki og mikil samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Stundvísi og samviskusemi

Skilyrði við ráðningur er að viðkomandi sé með hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur til og með 30. september 2025.

Nánari upplýsingar fást hjá Bjarnveigu deildarstjóra tómstundamiðstöðvarinnar [email protected]

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika.

Auglýsing birt17. september 2025
Umsóknarfrestur30. september 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Sólvangsvegur 1, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar