Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Forfallakennari - Setbergsskóli

Setbergsskóli auglýsir eftir kennara til að sinna tilfallandi og/eða fastri forfallakennslu á yngsta, mið- og unglingastigi

Setbergsskóli var stofnaður árið 1989 og eru nemendur um 420 auk þess sem starfrækt er sérdeild fyrir börn með einhverfu. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi sem býður upp á mikla möguleika til útiveru. Í skólanum er unnið metnaðarfullt starf með sérstakri áherslu á sköpun, fjölbreytt námsumhverfi, vellíðan, læsi, lýðræði og uppbyggjandi endurgjöf. Allir nemendur í 5. – 10. bekk hafa spjaldtölvur til umráða og yngri nemendur hafa einnig aðgang að slíkum tækjum. Einkunnarorð skólans eru virðing, víðsýni og vinsemd og grundvallast starf skólans á þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast tilfallandi og/eða fasta forfallakennslu á yngsta, mið- og unglingastigi.
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
  • Vinnur samkvæmt stefnu skólans í SMT skólafærni
  • Vinnur eftir stefnu skólans í eineltis- og forvarnarmálum
  • Er í samstarfi við starfsfólk sérdeildar vegna nemenda með einhverfu
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar – og hæfnikröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • Haldgóð þekking á kennslufærði námsgreina
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Jákvæðni og vilji til að ná árangri í starfi
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.

Umsóknarfrestur er til og með 25. september 2025.

Nánari upplýsingar um starfið veitir María Pálmadóttir, skólastjóri, í síma 5651011 eða í gegnum netfangið [email protected].

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt17. september 2025
Umsóknarfrestur25. september 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hlíðarberg 2, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar