Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sjúkraliði - Heimahjúkrun HH

Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins leitar að sjúkraliða í vaktavinnu. Um er að ræða ótímabundið starf á morgun-, kvöld- og helgarvaktir, starfshlutfall er 50-90% eða samkvæmt nánara samkomulagi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sinnir heimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og Mosfellsumdæmi og er með aðsetur í nýju og stórglæsilegu húsnæði að Miðhrauni 4 í Garðabæ. Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf er haft að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfssvið sjúkraliða í heimahjúkrun er að veita víðtæka hjúkrun í heimahúsum. Sjúkraliðar bera ábyrgð á að vinna samkvæmt hjúkrunaráætlun sem lögð er til grundvallar hjúkrunarmeðferð skjólstæðinga. Sjúkraliðar veita skjólstæðingum og aðstandendum þeirra leiðbeiningar og fræðslu. Starfið er mjög fjölbreytt og gefandi. Sjúkraliði vinnur náið í teymi með öðrum sjúkraliðum og hjúkrunarfræðingum þar sem teymisstjóri sem er hjúkrunarfræðingur fer fyrir teyminu. Sjúkraliði sinnir einnig öðrum verkefnum sem þeim er falið af teymisstjóra ásamt því að taka þátt í þróunarverkefnum og gæðastarfi innan stofnunar.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi 
  • Reynsla af heimahjúkrun æskileg 
  • Góð samskipta- og skipulagshæfni
  • Faglegur metnaður og áhugi á að vinna við heimahjúkrun 
  • Sjálfstæði í starfi 
  • Gilt ökuleyfi 
  • Hreint sakavottorð 
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Stytting vinnuvikunnar
  • Heilsustyrkur
Auglýsing stofnuð11. apríl 2024
Umsóknarfrestur6. maí 2024
Staðsetning
Miðhraun 4, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamvinnaPathCreated with Sketch.SjúkraliðiPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar