
Sóltún Reykjavík - hjúkrunarheimili
Hlutverk Sóltúns er að auka velsæld með fjölbreyttri heilbrigðisþjónustu í fremstu röð þar sem áhersla er á aukin lífsgæði og stuðning í daglegu lífi eldra fólks.
Við viljum skapa hlýlegt og nærandi samfélag þar sem þjónustuþegar og starfsfólk upplifir öryggi og vellíðan.
Við leggjum áherslu á framúrskarandi umönnun, persónulega og faglega þjónustu, fjölbreyttar lausnir, jákvæða forystu, gróskuhugarfar og framþróun.
Við rekum hjúkrunarheimilin Sóltún Reykjavík og Sóltún Sólvangi í Hafnarfirði.
Á Sólvangi er einnig Sóltún Heilsusetur sem býður eldra fólki upp á metnaðarfulla endurhæfingu í 4-6 vikna dvöl sem og dagþjálfun og dagdvöl.
Sóltún Heima býður upp á fjölbreytta heimaþjónustu fyrir þau sem á þurfa að halda, m.a. heimastuðning, heimahjúkrun og heimahreyfingu.

Sóltún - sjúkraliði, verkefnastjóri
Sóltún hjúkrunarheimili óskar eftir að ráða sjúkraliða í stöðu verkefnastjóra.
Starfið býður upp á fjölbreytt og krefjandi verkefni, en það felur m.a. í sér spennandi leiðtogahlutverk og verkefnastjórnun auk almennra starfa sjúkraliða við hjúkrun íbúa.
Um er að ræða 80-100% starfshlutfall en vaktafyrirkomulag er samkomulagsatriði.
Mikilvægt er að viðkomandi búi yfir framúrskarandi samskiptahæfni, sjálfstæðum vinnubrögðum, frumkvæði og jákvæðu viðmóti.
Hreint sakavottorð og íslenskukunnátta C1 er skilyrði.
Við hvetjum öll áhugasöm að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir Hildur Björk Sigurðardóttir, forstöðumaður á netfangið [email protected]
Gildin okkar eru umhyggja, velferð, vellíðan og sjálfræði.
Auglýsing birt25. mars 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Sóltún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniMetnaðurSamviskusemiSkipulagTeymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Ábyrg og traust aðstoðarkona óskast sem fyrst
NPA miðstöðin

Sjúkraliðar - Hlévangur, Reykjanesbæ
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)

Sjúkraliðar með framhaldsmenntun - Hlévangur, Reykjanesbæ
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)

Umönnunarstörf - Sóltúni í Reykjavík
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Sérhæfður starfsmaður á æðaþræðingu- og inngripsröntgendeild í Fossvogi
Landspítali

Sjúkraliði á bráðaþjónustu kvennadeilda
Landspítali

Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi - Spennandi störf á smitsjúkdómadeild
Landspítali

Velferðarsvið - Seljudalur/þjónustuíbúðir
Reykjanesbær

Sjúkraliði á endurhæfingardeild Grensási
Landspítali

Sjúkraliði - Gjörgæsla Fossvogi
Landspítali

Söluráðgjafi hjá Stuðlabergi heilbrigðistækni
Eirberg - Stuðlaberg heilbrigðistækni

Sjúkraliði á taugaendurhæfingardeild Landakoti
Landspítali