

Velferðarsvið - Seljudalur/þjónustuíbúðir
Seljudalur þjónustuíbúðir leita að öflugum starfsmanni til starfa við fjölbreytt og gefandi starf með einstaklingum með fjölþættan vanda og mikla þjónustuþörf.
Nálægð við íbúa er mikil og erum við til staðar við athafnir daglegs lífs, bæði innan og utan heimilis. Við vinnum samkvæmt hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar (e. Gentle Teaching), leiðbeinum, styðjum og hvetjum íbúa með það að markmiði að auka lífsgæði þeirra, efla sjálfstæði og styðja við sjálfsákvörðunarrétt.
Vegna eðlis starfsins eru karlmenn sérstaklega hvattir til að sækja um.
Unnið er á öllum tímum sólarhrings og er því um vaktavinnu að ræða. Starfsmaður þarf að geta unnið dag-, kvöld-, nætur- og helgarvaktir.
Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í störfum sínum.
- Aðstoð, stuðningur og leiðsögn við athafnir daglegs lífs innan og utan heimilis.
- Félagslegur stuðningur og hvatning til virkni og þátttöku í samfélaginu.
- Aðstoð og leiðsögn við heimilishald, svo sem þrif, þvotta, innkaup og matargerð.
- Stuðningur við persónulega umhirðu eftir þörfum hvers og eins.
- Að efla sjálfstæði og sjálfsákvörðunarrétt íbúa.
- Að vinna samkvæmt þjónustu- og einstaklingsáætlunum og vinnuferlum í samvinnu við íbúa og samstarfsfólk.
- Félagsliðanám, stúdentspróf eða tveggja ára menntun á framhaldsskólastigi er kostur.
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki er æskileg.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulund.
- Frumkvæði, sveigjanleiki og jákvæðni í starfi.
- Góð íslenskukunnátta í mæltu og rituðu máli.
- Hreint sakavottorð er skilyrði
- Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
- Gjaldfrjáls aðgangur í sund
- Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Íslenska










