Suðurnesjabær
Suðurnesjabær

Starfsmaður í félagsstarfi eldri borgara

Suðurnesjabær leitar að öflugum, þjónustulunduðum og metnaðarfullum starfsmanni til starfa í félagsstarfi eldri borgara, starfið er í 44% starfshlutfalli, unnið er á dagvinnutíma. Um er að ræða fjölbreytt og gefandi starf þar sem lögð er áhersla á að efla þátttöku, vellíðan og félagslega virkni eldri íbúa sveitarfélagsins.

Starfsmaður tekur virkan þátt í daglegri starfsemi félagsstarfsins og kemur að skipulagningu dagskrár, tómstundastarfs og viðburða í samstarfi við stjórnendur. Starfið felur í sér undirbúning og framkvæmd fjölbreyttra viðburða á starfsstöðvum félagsstarfsins í Miðhúsum og Auðarstofu.

Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna með fólki, sýnir frumkvæði og leggur sig fram um að skapa hlýlegt, skapandi og aðgengilegt umhverfi þar sem allir finna sig velkomna.

Helstu verkefni:

  • Vera til staðar fyrir gesti á opnunartíma félagsstarfsins
  • Stuðla að jákvæðum samskiptum og góðri þjónustu við gesti
  • Undirbúa húsnæði og aðstöðu fyrir fjölbreytta dagskrá og viðburði
  • Skipuleggja félagslíf og tómstundastarf í samráði við stjórnendur
  • Hvetja til þátttöku og stuðla að jákvæðu, skapandi og opnu andrúmslofti
  • Taka þátt í innleiðingu og framkvæmd stefnu Suðurnesjabæjar í málefnum eldri borgara
  • Tileinka sér nýjar nálganir og vinnubrögð og taka þátt í þróun félagsstarfsins
  • Viðhalda góðu samstarfi við gesti, samstarfsfólk og aðra samstarfsaðila
  • Önnur tilfallandi verkefnum samkvæmt nánara samkomulagi við stjórnendur

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi, svo sem félagsliðanám, stúdentspróf eða sambærileg menntun, er kostur
  • Reynsla af félagsstarfi eða sambærilegum störfum er kostur
  • Jákvætt viðmót og rík þjónustulund
  • Frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulagshæfni
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Góð íslenskukunnátta

Umsóknarfrestur er til og með 8. september 2026.

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Álfhildur Sigurjónsdóttor Heide, forstöðumaður félagsstarfs eldri borgara, á netfanginu [email protected]

Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Auglýsing birt31. ágúst 2026
Umsóknarfrestur8. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar