

Sérfræðingur við þróun á veiðarfæratækni
Hafrannsóknastofnun auglýsir tímabundið starf sérfræðings til tveggja ára. Starfið snýr að rannsóknum og þróun á veiðarfæratækni sem stuðlar að bættri kjörhæfni, minni áhrifum á hafsbotninn og lækkun kolefnisspors.
Starfið er hluti af Marine Guardian verkefninu sem styrkt er af Horizon áætlun Evrópusambandsins.
Um stofnunina
Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, heyrir undir Atvinnuvegaráðuneytið og er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði hafs- og vatnarannsókna. Stofnunin gegnir auk þess ráðgjafahlutverki um sjálfbæra nýtingu og verndun auðlinda hafs, vatna og í fiskeldi. Hluti starfseminnar tengist alþjóðlegu samstarfi við erlendar hafrannsóknastofnanir og háskóla. Stofnunin rekur auk aðalstöðva í Hafnarfirði starfsstöðvar vítt og breytt um landið, tilraunaeldisstöð, tvö rannsóknaskip. Hjá stofnuninni starfa að jafnaði um 200 manns í fjölbreyttum störfum.
Gildi Hafrannsóknastofnunar eru: Þekking - Samvinna - Þor
- Heimildavinna
- Samræming á gagnasöfnun meðal fjölbreytts hóps rannsakenda
- Skipulagning funda
- Skýrsluskrif og vinna með fulltrúum atvinnugreinarinnar varðandi þróun og nýsköpun í veiðarfærum og tækni
Umsækjandi kemur til með að fá þjálfun við að skipuleggja vinnustofur með hagsmunaaðilum en unnið verður náið með atvinnugreininni við þróun veiðitækni. Ferðalög eru nauðsynleg vegna árlegra funda eða ráðstefna, þjálfunar og til að framkvæma prófanir á veiðarfærum á sjó.
- Meistaragráða eða sambærileg menntun í líffræði, verkfræði eða auðlindastjórnun
- Þriggja ára reynsla af vinnu beint með eða innan sjávarútvegs, helst tengd veiðarfærum eða þróun veiðitækni
- Reynsla af vinnu á sjó er mikill kostur
- Reynsla af hagnýtri vinnu við veiðarfæratækni er æskilegt
- Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu/hæfni í gagnagreiningu, gagnavinnslu eða tölvunarfræði
- Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Góðir skipulags- og samskiptahæfileikar.
- Reynsla af skýrslugerð er kostur
- Jákvætt viðmót, samstarfsvilji og hæfni til að vinna í teymi.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.
- Ítarleg náms- og ferilskrá
- Afrit af prófskírteinum
- Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið
-
Tilnefning a.m.k. tveggja meðmælenda.
Sótt er um starfið á Starfatorgi. Gerð er krafa um að umsækjendur hafi hreint sakavottorð. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknir til greina. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur.
Starfshlutfall er 100%
Nánari upplýsingar veita
Pamela J. Woods, Fiskifræðingur - [email protected]
Sólveig Lilja Einarsdóttir, Mannauðsstjóri - [email protected]
Jónas Páll Jónasson, Sviðsstjóri - [email protected]













