

Sérfræðingur í áætlanagerð
Coca-Cola á Íslandi leita að metnaðarfullum sérfræðingi í áætlanagerð. Viðkomandi er hluti af innkaupa- og áætlanateymi á vörustjórnunarsviði og tekur þátt í ýmiss konar teymisvinnu með frábæru samstarfsfólki hérlendis og erlendis. Viðkomandi gegnir veigamiklu hlutverki í vörustjórnun með því að skipuleggja framleiðslu og innkaup. Nákvæmni, talnalæsi, geta til að vinna með gögn, sjálfstæð vinnubrögð og greinandi hugsun eru mikilvægir þættir til að ná árangi í starfi.
- Umsjón með gerð framleiðsluáætlunar
- Umsjón með innkaupaáætlun fyrir framleiðsluvörur og fullunnar vörur sem seldar eru hjá fyrirtækinu
- Samskipti við birgja og flutningsaðila
- Þáttakandi í fundum hérlendis og með samstarfsaðilum erlendis
- Fylgjast með lykilmælikvörðum og skýrslum
- Þátttakandi í ferla- og umbótavinnu á sviði innkaupa-og áætlanagerðar
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. verkfræði, viðskiptafræði eða annað sambærilegt
- Góð færni í Excel og öðrum office forritum
- Góð íslensku-og enskukunnátta í ræðu og riti
- Hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að vinna í hópi
- Geta til að vinna undir álagi og bera ábyrgð
- Reynsla af áætlanagerð kostur
- Þekking á ERP kerfi kostur
Enska
Íslenska










