

Senior forritari
Við leitum að sjálfstæðri og umbótasinnaðri manneskju með reynslu af hugbúnaðargerð í hugbúnaðarteymi Ljósleiðarans.
Við leggjum áherslu á að vera í góðu samtali við okkar viðskiptavini og að nýta hugbúnaðarlausnir á skapandi hátt til að auka þjónustuupplifun. Því er góð samskiptafærni lykilforsenda árangurs í þessu starfi ásamt reynslu af hugbúnaðarþróun.
Ef þú brennur fyrir nýrri tækni og vilt smíða vörur sem hafa áhrif þar sem mikið liggur við þá erum við að leita að þér!
Helstu viðfangsefni
Í starfinu felst m.a. þróun og viðhald á hugbúnaðarlausnum Ljósleiðarans, samstarf við önnur teymi til að tryggja framúrskarandi virkni og upplifun, innleiðing nýjustu tækni og aðferða í forritun ásamt því að leysa tæknileg vandamál og útfæra nýjar hugmyndir.
Hjá okkur færðu tækifæri til að vinna í hópi sérfræðinga sem ber ábyrgð á þróun og rekstri hugbúnaðarlausna Ljósleiðarans, þar sem áhersla er lögð á sveigjanleika, nýsköpun og örugga notendaupplifun. Við notum fjölbreytt tól og tækniramma eins og Python, TypeScript, Go, Vue, Django og FastAPI. Lausnirnar keyra á innviðum á borð við AWS Lambda og Kubernetes og við notum Git fyrir útgáfustýringu og samvinnu.
Hæfni:
- Þekking á skýjaumhverfi og reynsla af þjónustum eins og AWS
- Góð samskipta- og samvinnufærni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Reynsla af forritunarmálum og umhverfum á borð við þau sem við notum er kostur
- Menntun í tölvunarfræði, skyldum greinum eða sambærileg haldbær reynsla











