

Bakenda forritari
Við leitum að reynslumiklum bakendaforritara til að starfa með sterku þróunarteymi Nova. Um er að ræða fjölbreytt hlutverk í teymi sem sér um uppbyggingu á áskriftar- og þjónustukerfum fyrir farsíma- og netlausnir NOVA.
Hugbúnaðarþróunarteymi Nova sér um þróun og viðhald á sölu-, áskriftar- og þjónustukerfum fyrir farsíma- og netlausnir NOVA. Teymið ber einnig ábyrgð á samþættingu við kjarnakerfi í fjarskiptarekstri. Þekking og/eða áhugi á net og farsímakerfum er því kostur. Nova er með mörg kerfi í rekstri sem þarf að sinna og þurfum við einstakling sem er tilbúin/n til að kynnast vel þeim kerfum með það sjónarmið að betrumbæta tæknireksturinn með öllu teyminu.
- Þróa bakendakerfi fyrir stafrænar vörur Nova.
- Vinna við samþættingu kerfa og tengingar við kerfiseiningar tengdar fjarskiptarekstri.
- Sinna greiningu og skipulagi verkefna í samstarfi við kröfuhafa, vörustjóra og aðra í teyminu.
- Taka þátt í vöruþróun Nova.
- Háskólapróf í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði, annað sambærilegt nám.
- Haldbæra reynslu í bakendaforritun í .NET eða sambærilegu.
- Áhuga á Domain Driven design og atburðadrifnum arkítektúr.
- Metnað fyrir því að skrifa góðan og viðhaldanlegan kóða.
- Þekkingu á helstu hönnunarmynstrum hugbúnaðar
- Getu til að taka ábyrgð og leiða verkefni.
- Getu til að miðla þekkingu og reynslu til teymismeðlima.
- Frumkvæði, sköpunargleði og samskiptahæfni.
Hjá Nova er að finna kerfi skrifuð í .NET, Java, Node.js og Go. Við notum REST, GraphQL, OAuth2, Kafka, MS SQL og reiðum okkur á m.a. á docker, k8s og GitHub actions svo fátt eitt sé nefnt.
Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2025.













