Reykjanesbær - Afgreiðsla á pósthúsi
Pósturinn óskar eftir gjaldkera í hlutastarf á pósthúsið í Reykjanesbæ.
Starfið felur m.a. í sér þjónustu við viðskiptavini, almenna afgreiðslu, frágang á pósti og önnur tilfallandi verkefni.
Vinnutíminn er frá klukkan 13:00 til 17:00 mánudaga til fimmtudaga og frá klukkan 12:00 til 16:00 á föstudögum. Viðkomandi þarf að geta hafið störf þann 15. október 2024.
Hæfniskröfur:
- Góð samskiptahæfni
- Rík þjónustulund
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Jákvætt hugarfar og lausnamiðuð hugsun
Öllum umsóknum verður svarað og farið er með umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Elín Björg Guðmundsdóttir, rekstrarstjóri, í tölvupósti eling@postur.is.
Hjá Póstinum starfar lausnamiðað starfsfólk sem tekur fagnandi á móti síbreytilegum áskorunum þar sem liðsheild, þjálfun og góður starfsandi er í forgrunni. Pósturinn leggur sitt lóð á vogarskálar til að stuðla að sjálfbærni og hefur uppfyllt öll markmið Grænna skrefa. Pósturinn er jafnlaunavottað fyrirtæki.