Lyfja
Lyfja er eitt elsta einkarekna apótek landsins en fyrirtækið hóf starfsemi sína með opnun Lyfju Lágmúla 1996. Í dag rekur Lyfja rúmlega 40 apótek og útibú um allt land.
Hjá Lyfju starfa í kringum 350 starfsmenn sem eiga það sameiginlegt að vera umhugað um þína vellíðan. Við erum með ólíkan bakrunn og menntun s.s. lyfjafræðingar, lyfjatæknar, förðunarfræðingar, snyrtifræðingar, hjúkrunarfræðingar og viðskiptafræðingar. Meðalaldur starfsfólk er 40 ár og meðalstarfsaldur er rúm 5 ár.
Fagmennska skiptir okkur öllu máli og því er öflugt fræðslustarf fyrir starfsmenn til að auka þekkingu og færni. Það skiptir okkur máli að starfsmenn Lyfju fái að þróast og vaxa hjá okkur.
Haustið 2015 fékk Lyfja jafnlaunavottun VR og í febrúar 2018 fékk Lyfja síðan jafnlaunavottun Velfarnaðarráðuneytisins og var á meðal 20 fyrstu fyrirtækja á Íslandi til að öðlast þá vottun.
Lyfja Lágmúla - Lyfjatæknir á vaktarúllu
Við leitum að Lyfjatækni í Lyfju Lágmúla.
Við leitum að sjálfstæðum og skipulögðum lyfjatækni með ríka þjónustulund. Starfið felst í ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum, afgreiðslu á kassa, afhendingu lyfja gegn lyfseðli, afgreiðslu á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra.
Helstu verkefni:
- Móttaka lyfseðla
- Lyfjatiltekt
- Samlestur lyfseðla og afgreiðsla lyfja
- Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og notkun þeirra
- Afhending lyfja gegn lyfseðli
- Afgreiðsla á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra
- Frágangur lyfja
Hæfniskröfur:
- Reynsla af störfum í apóteki er nauðsynleg
- Lyfjatæknir með gilt starfsleyfi er kostur
- Rík þjónustulund
- Áhugi á mannlegum samskiptum
- Jákvæðni og gott viðmót
- Geta til að starfa undir álagi
- Góð almenn tölvukunnátta
Opnunartími Lyfju Lágmúla er 8-24 alla daga vikunnar og unnið er á vaktarúllum.
Allir umsækjendur þurfa að hafa ágæta íslensku- og enskukunnáttu og vera að minnsta kosti 20 ára.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Elínborg Krtistjánsdóttir, lyfsali Lyfju Lágmúla | elinborg@lyfja.is
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Auglýsing birt27. september 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Lágmúli 5, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Lyfjatæknir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (6)
Sambærileg störf (12)
Þjónar í hlutastarf
Íslenski Barinn
Lyfja Hólagarði - Umsjón verslunar
Lyfja
SÖLUFULLTRÚI Í DÖMU- OG BARNADEILD
Föt og skór ehf
CityHost (receptionist)
CityHub Reykjavik
Sölumaður í verslun
Rafkaup
Vaktstjóri á Brikk Hafnarfirði
Brikk - brauð & eldhús
Vöruhús, vöruafhendingar og afgreiðsla
Álfaborg ehf
Akranes - tímavinna
Vínbúðin
KFC Faxafeni
KFC
Starf í afgreiðslu og eldhúsi
Leyfa Sér ehf
A4 Akureyri - Starf með skóla
A4
Gestamóttaka - Næturvörður
Gistihúsið - Lake Hotel Egilsstaðir