
Ráðgjafi á Suðurlandi
Vinnumálastofnun óskar eftir að ráða ráðgjafa á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Suðurlandi. Starfsstöð ráðgjafa er á Selfossi.
Ráðgjafi þjónustar atvinnuleitendur og atvinnurekendur með það að markmiði að vinna gegn atvinnuleysi. Í starfi sínu þarf ráðgjafi að geta beitt fjölbreyttum aðferðum og myndað tengsl við ólíka aðila til að vinna að hagsmunum atvinnuleitenda og atvinnulífs.
Leitað er eftir einstaklingi sem á auðvelt með að tileinka sér gildi Vinnumálastofnunar: Fyrirmyndarþjónusta; Virðing; Áreiðanleiki.
-
Almenn ráðgjöf og vinnumiðlun
-
Mat á starfsgetu og þjónustuþörf atvinnuleitenda
-
Ráðgjöf við flóttamenn
-
Skráningar, upplýsingamiðlun og samskipti við fræðsluaðila
-
Kynningar, starfsleitarfundir og umsjón með námskeiðum
-
Koma á og viðhalda tengslum við fyrirtæki og aðra hagsmunaaðila
-
Símavaktir og önnur tilfallandi verkefni
-
Háskólapróf sem nýtist í starfi s.s. á sviði félagsráðgjafar, náms- og starfsráðgjafar, þroskaþjálfunar eða önnur menntun sem nýtist í starfi
-
Reynsla af ráðgjöf er æskileg
-
Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og góðir skipulagshæfileikar
-
Samskiptahæfni, þjónustulund og metnaður til að skila góðu starfi
-
Góð íslensku og enskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti













