

Ráðgjafi í þjónustu við einstaklinga og fjölskyldur
Velferðarþjónusta Sveitarfélagsins Árborgar leitar að öflugum og metnaðarfullum ráðgjafa sem brennur fyrir snemmtækri þjónustu og velferð barna og fjölskyldna þeirra.
100% starf og viðkomandi þarf að geta hafið störf í síðasta lagi 1.september.
Starfið felur í sér að veita upplýsingar um þjónustu og veita öfluga ráðgjöf til forráðamanna í samræmi við lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. nr. 86/2021. Áhersla er lögð á snemmtæka íhlutun, samþætta þjónustu og þverfaglegt samstarf við önnur fagsvið og stofnanir.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
- Málastjórn og ráðgjöf samkvæmt farsældarlögum.
- Móttaka, greining og úrvinnsla erinda og umsókna.
- Uppeldis- og foreldraráðgjöf, veitt í ráðhúsinu og á heimilum fólks.
- Ráðgjöf og stuðningur við fjölskyldur.
- Mat á þörf fyrir þjónustu, úrræði og gerð þjónustu- og stuðningsáætlana.
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu innan og utan sveitarfélags.
- Reglubundin eftirfylgd og mat á árangri þjónustu.
- Skýrslugerð og skráning.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. félagsráðgjöf, uppeldis- eða félagsvísindi.
- Þekking og reynsla af vinnu með barnafjölskyldum– helst innan opinberrar þjónustu.
- Góð samskiptahæfni, frumkvæði og hæfni til sjálfstæðrar vinnu.
- Reynsla af teymisvinnu og samþættri þjónustu er kostur.
- Þekking á lögum og reglugerðum sem tengjast starfssviði.
- Færni í skráningu, greiningarvinnu og tölvukerfum opinberrar stjórnsýslu.












