
Fjölskyldusvið
Múlaþing er nýtt sveitarfélag á Austurlandi með rúmlega 5000 íbúum. Undir Fjölskyldusvið Múlaþings heyra félagsmál, fræðslumál, íþrótta- og æskulýðsmál.

Ráðgjafi í málefnum fatlaðs fólks
Laus er til umsóknar 100% staða ráðgjafa í málefnum fatlaðs fólks í félagsþjónustu Múlaþings. Ráðið er í stöðuna frá 15. ágúst nk. eða eftir samkomulagi.
Starfskraftur sinnir meðal annars verkefnum tengdum málefnum fatlaðs fólks, bæði börnum, fullorðnum og fjölskyldum þeirra, samþættingu í þjónustu farsældar barna, almennri félagslegri ráðgjöf sem og örðum þeim störfum sem almennt tilheyra sviðinu.
Næsti yfirmaður er félagsmálastjóri.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Margþætt aðstoð og stuðningur við þjónustunotendur.
- Tilsjón, ráðgjöf og stuðningur á heimilum.
- Málstjóri í samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og þátttaka í teymi innan Austurlandslíkansins.
- Skipuleggur og hefur umsjón með stuðningsþjónustu fyrir fötluð börn og fjölskyldur þeirra og gerir einstaklingsbundnar þjónustuáætlanir og/ eða stuðningsáætlanir.
- Þverfagleg teymisvinna og samstarf við fatlað fólk, aðstandendur og aðra er veita einstaklingnum þjónustu.
- Situr í stuðningsteymi einstaklinga með langvarandi stuðningsþarfir samkvæmt lögum þar um.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Gerð er krafa um að viðkomandi hafi háskólamenntun á viðurkenndu fagsviði sem nýtist í starfi s.s. þroskaþjálfun, iðjuþjálfun.
- Þekking og reynsla af félagsþjónustu, málefnum fatlaðs fólks, stuðningsþarfa barna og ungmenna.
- Geta og vilji til samvinnu og hæfni til að starfa í teymi og hugsa í lausnum.
- Reynsla af starfi í opinberri stjórnsýslu er kostur.
- Góð alhliða tölvukunnátta, þekking á OneSystems er kostur
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.
- Hreint sakavottorð.
- Bílpróf.
Fríðindi í starfi
Styttri vinnuvika, heilsueflingarstyrkur.
Auglýsing birt16. maí 2025
Umsóknarfrestur30. maí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Lyngás 12, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHreint sakavottorðJákvæðniMannleg samskiptiOpinber stjórnsýslaReyklausSjálfstæð vinnubrögðTeymisvinnaVeiplausÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)

Félagsráðgjafi eða sérfræðingur í barna- og fjölskylduvernd
Fjölskyldusvið

Skemmtilegt sumarstarf á Egilsstöðum
Fjölskyldusvið

Djúpivogur: Flokkstjóri og sumarfrístund
Fjölskyldusvið

Stuðningsþjónusta á Egilsstöðum - sumarstarf
Fjölskyldusvið

Stuðningsþjónusta á Seyðisfirði - hlutastarf/aukavinna
Fjölskyldusvið
Sambærileg störf (12)

Félagsráðgjafi eða sérfræðingur í barna- og fjölskylduvernd
Fjölskyldusvið

Skrifstofustarf hjá Samgöngustofu
Samgöngustofa

Lögfræðingur HMS á Sauðárkróki
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)

Skemmtilegt sumarstarf á Egilsstöðum
Fjölskyldusvið

Frábær aðstoðarkona óskast í Hafnarfjörðinn
NPA miðstöðin

Óska eftir hressum húmoristum í teymið mitt!
NPA miðstöðin

Konur sem kunna að prjóna eða hekla óskast á morgunvaktir
NPA miðstöðin

Ráðgjafi á Suðurlandi
Vinnumálastofnun

Sóltún - Iðjuþjálfi
Sóltún hjúkrunarheimili

Skemmtilegt sumarstarf í búsetukjarna
Búsetukjarninn Langahlíð

Frábærar aðstoðarkonur óskast
NPA miðstöðin

Velferðarsvið - starfsfólk í dagdvalir aldraðra
Reykjanesbær