
Akureyri
Akureyrarbær er stór vinnustaður með rúmlega 2.000 starfsmenn. Á hverju vori fjölgar starfsfólki um nálægt 1.200 manns vegna sumarafleysinga og vinnuskólans.
Starfsfólk Akureyrarbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem tryggja velferð og ánægju íbúa Akureyrar, hvort sem um er að ræða störf við leik- eða grunnskóla, íbúakjarna, rekstur mannvirkja, stjórnsýslu eða annað.

Velferðarsvið: Deildarstjóri í Stoðþjónustu
Velferðarsvið Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða þroskaþjálfa í stöðu deildarstjóra í stoðþjónustu. Um er að ræða 90-100% starf sem er ótímabundið. Upphaf starfs er samkomulagsatriði.
Stoðþjónusta veitir stuðning og ráðgjöf til fólks sem vegna fötlunar, félagslegra aðstæðna og veikinda þurfa aðstoð við athafnir daglegs lífs, félagslega aðlögun og aðstoð við heimilishald. Stuðningurinn getur farið fram á heimili eða utan þess, allt eftir þörfum hvers og eins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hefur umsjón með uppbyggingu og skipulagningu á einstaklingsmiðaðri, heildstæðri og sveigjanlegri þjónustu.
- Vinnur með notendum og eftir atvikum aðstandendum að gerð einstaklingsbundinnar stuðningsáætlunar um stuðning og markmið hennar og er leiðandi í framfylgd hennar.
- Miðlar upplýsingum og áherslum forstöðumanns þjónustunnar til alls starfsfólks og um breytingar í þjónustu og/eða stefnumótun.
- Mat á þörf fyrir stuðning hjá nýjum notendum sem og eldri.
- Á samstarf við utanaðkomandi aðila og er tengiliður milli þeirra og starfsmanna.
- Er tengiliður við notendur og aðstandendur.
- Er í samstarfi við aðra fagaðila sem tengjast stuðning við notendur og sér um að miðla upplýsingum áfram til annarra sem að málum koma.
- Heldur utan um og skipuleggur stuðningstíma notenda.
- Skráning og utanumhald á upplýsingum í þar til gerð skráningakerfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsleyfi sem þroskaþjálfi.
- Þekking og reynsla af því að vinna með fólki með ýmiskonar færniskerðingu.
- Þekking og reynsla af ráðgjöf og samhæfingu verkefna er æskileg.
- Þekking á þjónustukerfum velferða- og heilbrigðismála.
- Þekking og reynsla af notkun velferðartækni og framsækin hugsun þar að lútandi.
- Framúrskarandi færni í samskiptum, skipulagningu og verkstjórn.
- Sjálfstæði í störfum og frumkvæði.
- Sveigjanleiki og eiga auðvelt með að laga sig að breytingum og breyttum aðstæðum með skömmum fyrirvara vegna mismunandi þarfa þeirra einstaklinga sem verið er að þjónusta.
- Hæfni til nýsköpunar, verkefnastjórnunar og innleiðingu nýrra hugmynda og vinnubragða.
- Hafa bíl til umráða og gild ökuréttindi.
- Gott vald á íslensku, bæði í rituðu og töluðu máli.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt4. júní 2025
Umsóknarfrestur17. júní 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Glerárgata 26, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagSveigjanleikiÞroskaþjálfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Aðstoðarmanneskja óskast á Akureyri í afleysingar
NPA miðstöðin

Kennari óskast í leikskólann Nóaborg - 36 stunda vinnuvika
Leikskólinn Nóaborg

Starfsfólk á Heimili fyrir börn
Mosfellsbær

Hjúkrunardeildarstjóri á hjúkrunarheimilinu Seltjörn
Seltjörn hjúkrunarheimili

Stuðningsaðili á Velferðarsviði
Kópavogsbær

Sérfræðingur á athvarfið Læk
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri á íbúðarkjarna við Skúlagötu
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Skemmtilegt starf í Keflavík!
NPA miðstöðin

Ráðgjafi
Vinakot

Stuðningsfulltrúi í félagsþjónustu.
Sólheimar ses

Ráðgjafi í málefnum fatlaðs fólks
Fjölskyldusvið

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Steinahlíð
Hafnarfjarðarbær