OK
OK samanstendur af gríðarlega öflugu starfsfólki, en þar sameinast eldmóður, reynsla og þekking starfsfólks sem setur þarfir viðskiptavina í forgang.
OK hefur að skipa öflugu teymi reyndra sérfræðinga á flestum sviðum upplýsingatækni með langa reynslu af ráðgjöf, rekstri, þjónustu og innleiðingu lausna hjá flestum af stærstu og kröfuhörðustu fyrirtækjum og stofnunum landsins ásamt stórum erlendum viðskiptavinum.
Vinnustaðurinn er krefjandi og skemmtilegur þar sem starfsmenn eru hvattir til að vera sjálfstæðir í starfi og hafa áhrif á eigið starfsumhverfi.
Hjá OK starfar samhentur hópur fólks og er kapp lagt á að viðhalda góðum starfsanda, en það hefur skilað sér í ánægðu starfsfólki sem hefur fengið tækifæri til að vaxa og dafna í leik og starfi.
OK hlaut viðurkenninguna Fyrirtæki ársins 2023 sem veitt er fyrirtækjum fyrir framúrskarandi vinnuumhverfi og starfsanda, en fyrirtækið hefur hlotið þá viðurkenningu þrjú ár í röð.
OK leitar að Rekstrarstjóra Prentlausna
OK leitar að öflugum og metnaðarfullum aðila til að leiða vöruþróun og sölu prentlausna OK.
Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga og reynslu til að bætast í hópinn og hjálpa okkur að efla og þróa sölu í prentlausnum til viðskiptavina OK.
Starfið tilheyrir Búnaðarsviði og felst í ráðgjöf og þjónustu við viðskiptavini ásamt tilboðsgerð og tækifæraöflun.
OK vinnur fyrir mörg af stærstu og kröfuhæstu fyrirtækjunum þegar kemur að upplýsingatækni og lausnaráðgjöf og eru verkefni starfsins því fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg.
Hjá OK starfar fjölbreyttur hópur fólks og hvetjum við öll sem uppfylla hæfnikröfur og hafa áhuga á starfinu til að sækja um, óháð kyni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á rekstri og afkomu prentlausna OK
- Ábyrgð á vöru- og þjónustuframboði prentlausna OK
- Ráðgjöf og sala til viðskiptavina
- Samskipti við birgja
- Þátttaka í markaðsmálum tengdum prentlausnum OK
Menntunar- og hæfniskröfur
- Að lágmarki 5 ára starfsreynsla í IT og/eða sölu skilyrði
- Reynsla af vörustýringu og rekstri
- Brennandi áhugi á upplýsingatækni
- Þekking og reynsla af prentþjónustu og prentumhverfum
- Þjónustulund, jákvæðni og góð samskiptahæfni
- Gagnrýnin- og lausnamiðuð hugsun
- Frumkvæði og hæfni til að starfa bæði sjálfstætt og í teymi
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði
- Hreint sakavottorð er skilyrði
Auglýsing birt15. nóvember 2024
Umsóknarfrestur25. nóvember 2024
Tungumálahæfni
Enska
Mjög góðNauðsyn
Íslenska
Mjög góðNauðsyn
Staðsetning
Skútuvogur 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Fljót/ur að læraHreint sakavottorðJákvæðniMannleg samskiptiMetnaðurSjálfstæð vinnubrögðSkipulagSveigjanleikiTeymisvinnaVandvirkniÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)
Viðskiptastjóri útflutnings / Key Account Manager of Export
Saltverk
Söluráðgjafi Origo lausna
Origo lausnir
Söluráðgjafi rafbúnaðar
Johan Rönning
Art Gallery - Sales Consultant
Iurie I Fine Art
Sölu- og markaðsfulltrúi
Reon
Ráðgjafi á Höfn í Hornafirði
Sjóvá
Söluráðgjafi í ELKO Lindum - Hlutastarf
ELKO
Sérfræðingur í ráðgjöf með sjúkrarúm og tengd hjálpartæki
Öryggismiðstöðin
Síminn leitar að fyrirtækjaráðgjafa
Síminn
Söluráðgjafi í ELKO Lindum
ELKO
Ertu söludrifinn og jákvæður einstaklingur?
Tryggja
Þjónustuver
Bílanaust