OK
OK
OK

OK leitar að leiðtoga yfir NOC vaktborði

OK leitar að áhugasömum, drífandi einstakling með kerfisstjórareynslu til að takast á við nýja stöðu sem NOC leiðtogi með okkar frábæra vöktunar-teymi og koma að framþróun á þjónustunni, kerfum, verklagi og öðru. Um er að ræða fullt starf á dagtíma með mætingu á starfsstöð á höfuðborgarsvæðinu. Vinnutími er að jafnaði frá kl 8:00-16:00 alla virka daga.

Hjá OK starfar fjölbreyttur hópur fólks og hvetjum við öll sem uppfylla hæfnikröfur og hafa áhuga á starfinu til að sækja um, óháð kyni.

Hvað er NOC ?

NOC (Network Operations Center) er okkar 24x7 vöktunarþjónusta.

Vöktunarþjónusta felur í sér vöktun á tölvukerfum allan sólarhringinn, alla daga ársins og býr að öflugum hópi sérfræðinga, vöktunarkerfum og ferlum sem tryggja þann uppitíma sem krafist er.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagvaktir á NOC (08:00-16:00)

  • Skipulag og umsjón með vaktaplani teymisins

  • Dagleg umsýsla NOC teymis og samskipti við lykilaðila innan OK

  • Umsýsla kerfa, útstöðva og annarra jaðartækja

  • Úrvinnsla verkbeiðna

  • Þjónusta við notendur

  • Vinna með forstöðumanni í framþróun á þjónustunni, val á kerfum, úrbótaverkefni og nýjungar

  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Nám í kerfisstjórnun eða önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Að lágmarki 1 árs reynsla af kerfisstjórn er skilyrði
  • Hreint sakavottorð er skilyrði
  • Öguð og sjálfstæð vinnubrögð
  • Geta til að vinna í hóp og vera hluti af teymi
  • Góð færni í íslensku, bæði skrifuðu og töluðu máli
  • Góð færni í ensku, bæði skrifuðu og töluðu máli
  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri
Auglýsing birt5. febrúar 2026
Umsóknarfrestur22. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Skútuvogur 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar