Raförninn
Raförninn
Raförninn

Ert þú týpan sem elskar að leysa tæknileg vandamál?

Raförninn er framsækið og metnaðarfullt tæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í þjónustu og ráðgjöf á tæknibúnaði, með sérstaka áherslu á heilbrigðisgeirann.

Við leitum að framúrskarandi tæknimanni með góða og djúpa tölvukunnáttu til að bætast í öflugt og samstillt teymi tæknimanna fyrirtækisins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Viðhald og eftirlit lækningatækja

  • Gæðamælingar lækningatækja

  • Uppsetningar lækningatækja

  • Uppsetning og þjónusta myndavéla og kerfa til sjálfvirkrar úrvinnslu myndstrauma

  • Þjónusta og bilanagreining á ýmsum tæknikerfum

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun á sviði iðnfræði, rafeindavirkjunar, rafvirkjunar eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi

  • Lausnamiðuð hugsun og sjálfstæð vinnubrögð

  • Framúrskarandi tölvukunnátta

  • Þekking á Linux stýrikerfum

  • Góð þekking á netkerfum

  • Þjónustulund og góð hæfni í mannlegum samskiptum

  • Skipulögð og vönduð vinnubrögð

  • Hreint sakavottorð

  • Almenn ökuréttindi

  • Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti

  • Kostur er ef umsækjandi:

    • Hefur þekkingu á forritun

    • Hefur reynslu af störfum innan heilbrigðisgeirans

Við bjóðum
  • Starf þar sem fagmennska, öryggi og áreiðanleiki eru undirstaða allra verka

  • Góða og nútímalega vinnuaðstöðu

  • Sveigjanlegan vinnutíma

  • Tækifæri til símenntunar og starfsþróunar

  • Frábæra samstarfsfélaga og jákvætt starfsumhverfi

  • Líkamsræktarstyrk

  • Öflugt starfsmannafélag

Auglýsing birt6. febrúar 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Suðurhlíð 35, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar