

Kennari í rafiðngreinum
Komdu að kenna í MÍ í haust! Okkur í Menntaskólanum á Ísafirði vantar annan rafiðngreinakennara til að kenna rafvirkjun og rafmagnsfræðiáfanga á vélstjórnarstigi A og B.
Kennari í rafiðngreinum:
-
starfar eftir starfslýsingu sem er ítarlega skilgreind í gæðahandbók á heimasíðu skólans, www.misa.is
-
vinnur með öðrum rafiðngreinakennara sem og með stuðningi öflugs teymis kennslusviðs verknáms
-
kennir fagbóklega og verklega áfanga í rafiðngreinum
-
tekur þátt í faglegu starfi og starfsþróun með stöðugar umbætur í skólastarfi að leiðarljósi
-
vinnur eftir vottuðu gæðakerfi skólans
Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á fjölbreyttri kennslu í stað- og dreifnámi, er fær í samskiptum og fellur vel að aðstæðum og þörfum skólans.
Kennari í rafiðngreinum skal hafa:
-
hæfni og rétt til að nota starfsheitið kennari skv. lögum nr. 95/2019
-
sérhæfingu í kennslugrein skv. lögum nr. 95/2019
-
reynslu af kennslu eða starfstengdri leiðsögn
-
víðtæka þekkingu á rafiðngreinum
-
faglegan metnað, frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og jákvætt hugarfar
-
samskiptafærni, þjónustulund og hæfni til að starfa með öðrum sem og að vinna sjálfstætt
-
reynslu og hæfni í notkun upplýsingatækni, s.s. Office365
Íslenska










