
Menntaskólinn á Ísafirði
Menntaskólinn á Ísafirði er framsækinn framhaldsskóli. Skólinn býður upp á fjölbreytt nám í bók-, list-, verk- og starfsnámi og á starfsbraut. Í skólanum er kennt í stað-, dreif- og fjarnámi. Tæplega 50 starfsmenn starfa við skólann og nemendur eru tæplega 600. Skólinn hefur það að markmiði að bjóða upp á fjölbreytta kennsluhætti og námsmat með sérstakri áherslu á leiðsagnarnám. Gildi skólans eru virðing, metnaður og vellíðan.
Á heimasíðu skólans, www.misa.is er að finna ýmsar upplýsingar um skólann og skólastarfið sem og gæðahandbók skólans en skólinn hefur fengið ISO-9001 gæðavottun. Skólinn hefur sömuleiðis fengið ÍST 85:2012 jafnlaunavottun. Skólinn hefur fengið viðurkenningu fyrir að vera fyrirmyndarstofnun og árið 2024 lenti skólinn í 2. sæti í flokki meðalstórra stofnana í Stofnun ársins.

Kennari í vélstjórnargreinum á A- og B-stigi
Komdu að kenna í MÍ í haust! Okkur í Menntaskólanum á Ísafirði vantar kennara í vélstjórnargreinum en í skólanum er vélstjórn kennd á A- og B-stigi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennari í vélstjórnargreinum:
- starfar eftir starfslýsingu sem er ítarlega skilgreind í gæðahandbók á heimasíðu skólans, www.misa.is
- vinnur með öðrum kennurum sem og með stuðningi öflugs teymis kennslusviðs verknáms
- kennir fagbóklega og verklega áfanga í vélstjórnargreinum á A- og B-stigi
- tekur þátt í faglegu starfi og starfsþróun með stöðugar umbætur í skólastarfi að leiðarljósi
- vinnur eftir vottuðu gæðakerfi skólans
Menntunar- og hæfniskröfur
Kennari í vélstjórnargreinum skal hafa:
- hæfni og rétt til að nota starfsheitið kennari skv. lögum nr. 95/2019
- sérhæfingu í kennslugrein skv. lögum nr. 95/2019
- reynslu af kennslu eða starfstengdri leiðsögn
- víðtæka þekkingu á vélstjórnargreinum
- faglegan metnað, frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og jákvætt hugarfar
- samskiptafærni, þjónustulund og hæfni til að starfa með öðrum sem og að vinna sjálfstætt
- reynslu og hæfni í notkun upplýsingatækni, s.s. Office365
Auglýsing birt4. febrúar 2026
Umsóknarfrestur20. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Torfnes, 400 Ísafjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Þjónustumaður í kæliþjónustu
KAPP ehf

Viðgerðarmaður á verkstæði
Garðlist ehf

Vélvirki óskast
Voltus ehf.

Mechanic / Bifvélavirki
Campeasy

Vélfræðingur/tæknimaður í þjónustuteymi Slippsins Akureyri
Slippurinn Akureyri ehf

Reykjavík: Bifvélavirki/vélavirki - Car Mechanic
Íslenska gámafélagið ehf.

SPENNANDI STARF FYRIR RAFVIRKJA HJÁ TG raf
TG raf ehf.

Vélvirki - Vélfræðingur - Vélstjóri
Rúko hf

Sumarstarf - Vélaleiga og verkstæði
Rúko hf

Bifvélavirki fyrir Max1/Vélaland-Hafnarfjörður
MAX1 | VÉLALAND

Bifvélavirki fyrir Max1-Reykjavík
MAX1 | VÉLALAND

Viltu byggja upp framtíð vindorku á Íslandi?
Landsvirkjun