Öryggisvörður á Suðurnesjunum
Öryggismiðstöðin auglýsir eftir starsfólki til að sinna öryggisvörslu á starfsstöð á Suðurnesjunum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega og sé tilbúin/nn/ð í fullt starf.
Starfið er á sviði Mannaðra lausna sem veitir fjölbreytta þjónustu öryggisvarða, meðal annars útkallsþjónustu, vaktferðir, verðmætaflutninga og almenna öryggisgæslu fyrir viðskiptavini Öryggismiðstöðvarinnar. Um er að ræða starf á samheldnum, traustum og metnaðarfullum vinnustað.
Við leitum að einstaklingum til starfa sem hafa ástríðu fyrir öryggi og velferð annarra, eru jákvæðir og geta tekið ákvarðanir skjótt og vel. Við hvetjum öll kyn til að sækja um stöðuna.
Vaktir sem eru í boði eru:
Vaktavinna: 12 klst dag- og næturvaktir á 7-7 vaktarkerfi
Dagvinna mánudaga - föstudaga frá kl 08:00-16:00
- Almenn öryggisgæsla og önnur skyld störf á vegum fyrirtækisins
- Aðstoða viðskiptavini við úrlausn öryggistengdra verkefna
- Almenn ábyrgð á öllum búnaði sem öryggivörður hefur til umráða hverju sinni
- Önnur tilfallandi verkefni
- Rík þjónustulund
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð Enskukunnátta í tali og riti
- Góð Íslenskukunnátta í tali og riti
- Góð tölvukunnátta
- Gild ökuréttindi
- Hreint sakavottorð
Öryggismiðstöðin er framsækið þjónustufyrirtæki sem býður upp á fjölbreyttar lausnir og þjónustu í öryggis-og velferðartækni, fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Hjá Öryggismiðstöðinni starfar öflugur hópur sérfræðinga sem býr yfir brennandi áhuga, faglegri þekkingu og mikilli reynslu af þjónustu við viðskiptavini. Við leggjum ríka áherslu og metnað í gæði ráðgjafar við val á lausnum. Hornsteinar þjónustu okkar er öflug tækniþjónusta ásamt rekstri vaktmiðstöðvar til móttöku viðvörunarboða og útkallsþjónusta öryggisvarða allan sólarhringinn, alla daga ársins.
Við leggjum áherslu á vandaða og persónulega þjónustu með gildi fyrirtækisins að leiðarljósi, forystu, umhyggju og traust.