

Öryggisverðir í hafnarþjónustu - Sumarstarf
Öryggismiðstöðin er framsækið þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í fjölbreyttum lausnum og þjónustu í öryggis- og velferðartækni fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Við erum með vaxandi hóp sérfræðinga sem býr yfir brennandi áhuga, djúpstæðri fagþekkingu og mikilli reynslu í þjónustu við viðskiptavini.
Við leggjum áherslu á vandaða og persónulega þjónustu með gildi fyrirtækisins að leiðarljósi, forystu, umhyggju og traust.
Ertu með brennandi áhuga á öryggismálum ?
Öryggismiðstöðin leitar eftir einstaklingum í öryggisgæslu á höfninni á höfuðborgarsvæðinu. Starfið felur í sér að tryggja öryggi og eftirlit á svæðinu ásamt því að sinna daglegum verkefnum á höfninni.
Starfið er á sviði Mannaðra lausna sem veitir fjölbreytta þjónustu öryggisvarða, meðal annars útkallsþjónustu, vaktferðir, verðmætaflutninga og almenna öryggisgæslu fyrir viðskiptavini Öryggismiðstöðvarinnar. Um er að ræða starf á samhentum, traustum og metnaðarfullum vinnustað.
Við leitum að einstaklingum til starfa sem geta unnið sjálfstætt en einnig í liði, hafa ástríðu fyrir öryggi og velferð annarra, eru jákvæðir og geta tekið ákvarðanir skjótt og vel.
- Hafnargæsla við skemmtiferðaskip
- Landamæraeftirlit við höfnina, tryggja öryggi innan svæðis
- Skanna verðmæti og tryggja öryggi og flutning á þeim
- Afhending á vörum milli svæða
- Samskipti við viðskiptavini
- Almenn öryggisgæsla og önnur skyld störf á vegum fyrirtækisins
- Önnur tilfallandi verkefni
- 20 ára aldurstakmark
- Hreint sakavottorð
- Rík þjónustulund
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Geta til að vinna undir álagi
- Íslensku- og enskukunnátta
- Gild ökuréttindi


















