
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur verið leiðandi afl í íslensku tónlistarlífi í 70 ár og hefur um árabil verið í fremstu röð hljómsveita á Norðurlöndum. Hljómsveitin hefur fengið afbragðs dóma jafnt fyrir hljóðritanir sínar sem og tónleika heima og erlendis. Hún heldur um 100 tónleika á hverju starfsári, m.a. áskriftartónleika með heimsþekktum stjórnendum og einleikurum, en á einnig samstarf við listafólk úr öðrum greinum tónlistar. Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús, er heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Starfsmannafjöldi SÍ er um 100 manns. Nánari upplýsingar á sinfonia.is.
Nótnavörður Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Sinfóníuhljómsveit Íslands leitar að ábyrgum og vandvirkum nótnaverði til að ganga til liðs hljómsveitina. Um er að ræða fjölbreytt og mikilvægt starf þar sem þjónustulund, fagmennska, og þekking á hljómsveitartónlist fara saman.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með pöntun, kaupum, leigu og skilum á nótum fyrir hljómsveitina
- Viðhald og skipulagning nótnasafns hljómsveitarinnar
- Samskipti og samningar við innlenda og erlenda rétthafa vegna leigu á nótum
- Móttaka og vinnsla rafrænna nótna frá tónskáldum, útsetjurum eða öðrum rétthöfum
- Þjónusta við hljóðfæraleikara, hljómsveitarstjóra, tæknifólk
- Stuðningur við undirbúning hæfnisprófa og prufuspila
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Rík samskiptahæfni og þjónustulund
- Þekking á skráningu gagna og nótnaforlögum
- Góð þekking á hljómsveitartónlist, færni í nótnalestri og greiningu villna í nótum
- Þekking á uppbyggingu sinfóníuhljómsveita og hljóðfærum þeirra
- Gott tæknilæsi og hæfni í notkun rafrænna verkfæra, s.s. OPAS og skönnunarkerfa
- Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfni
- Góð kunnátta í ensku, bæði í ræðu og riti
- Tónlistarlegur skilningur á algengustu nótnatungumálum, svo sem þýsku, frönsku og/eða ítölsku er kostur
Auglýsing birt23. apríl 2025
Umsóknarfrestur12. maí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Austurbakki 2, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Aðstoðarmaður lögmanna
LEX Lögmannsstofa

Starf forstöðumanns Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri
Gunnarsstofnun Skriðuklaustri

Tólistarskóli Vopnafjarðar auglýsir eftir tónlistarkennara
Vopnafjarðarskóli

Stjórnandi skólahljómsveitar Grafarvogs
Reykjavíkurborg

Viðburðar- og sjálfboðaliðastjóri (50-100%)
Kraftur

Kennarar í Auðarskóla skólaárið 2025-2026
Auðarskóli

Rytmískur píanókennari
Listaskóli Mosfellsbæjar

Leikskólakennari í Kópahvol
Kópahvoll

Verkefnisstjóri vef- og markaðsmála á Heilbrigðisvísindasvið
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands

Stöður leikskólakennara á Litlu Ásum haustið 2025
Hjallastefnan

Tónlistarkennarar óskast
Fjarðabyggð

Rafbassakennari - Tónlistarskóli Hafnarfjarðar
Hafnarfjarðarbær