Móttökuritari óskast
Trausti fasteignasala óskar eftir starfsmanni í almenn skrifstofustörf, móttöku og aðstoð við löggilta fasteignasala stofunnar, skjalavinnslu og fleira.
Trausti fasteignasala er rótgróin fasteignasala með öfluga liðsheild. Okkur vantar duglegan og drífandi starfskraft til að halda utan um ýmsa hluti er snúa að skrifstofunni.
Mjög góð og vönduð vinnuaðstaða er í boði í skemmtilegu umhverfi.
Laun og önnur kjör eru samkomulag
Við eum staðsett í Vegmúla 4 í Reykjavík.
Umsóknafrestur er til 1. ágúst nk.
Ferliskrá ásamt kynningarbréfi berist á netfangið kristjan@trausti.is og allar frekari upplýsingar veitir Kristján Baldursson í síma 867-3040
Almenn skrifstofustörf, móttöku og aðstoð við löggilta fasteignasala stofunnar, skjalavinnslu og fleira. Umsjón samfélagsmiðla.
Laun og önnur kjör eru samkomulag