
Samband íslenskra sveitarfélaga
Samband íslenskra sveitarfélaga er framsækinn vinnustaður sem býður upp á opið vinnuumhverfi, samheldinn starfsmannahóp og skapar starfsmönnum gott svigrúm til starfsþróunar. Samband íslenskra sveitarfélaga er heilsueflandi vinnustaður og leggur ríka áherslu á að vinnustaðurinn sé fjölskylduvænn. Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu og kost á fjarvinnu eftir því sem við á.

Fjölbreytt starf hjá Sambandinu
Samband íslenskra sveitarfélaga leitar að jákvæðum, drífandi og glaðlyndum einstaklingi í starf móttökuritara. Um er að ræða 100% starf.
Hér er einstakt tækifæri fyrir fjölhæfan aðila sem hefur ríka þjónustulund, framúrskarandi samskiptahæfni og sveigjanleika til að taka að sér starf í skemmtilegu starfsumhverfi að fjölbreyttum verkefnum.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf ekki síðar en 1. september. Um er að ræða framtíðarstarf.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Símsvörun, móttaka og almenn upplýsingagjöf.
- Umsjón með fundarherbergjum og opnum rýmum.
- Umsjón með eldhúsi/kaffistofu starfsfólks.
- Skráning og frágangur á útsendum skjölum.
- Aðstoð við skjalavörslu, skráning og frágangur.
- Innkaup á vörum á skrifstofu og kaffistofu.
- Almenn skrifstofustörf og ýmis önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af sambærulegu starfi er kostur.
- Nákvæm, skipulögð og áreiðanleg vinnubrögð.
- Framúrskarandi samskiptahæfni, rík þjónustulund, frumkvæði og samviskusemi.
- Góð tölvukunnátta.
- Góð færni í íslensku.
Fríðindi í starfi
Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá Sambandinu:
- Sambandið er framsækinn og skemmtilegur vinnustaður.
- Þátttaka í þjónustuteymi sem vinnur að eflingu íslenskra sveitarfélaga.
- Boðið er upp á opið vinnuumhverfi.
- Hér starfar samheldinn hópur og starfsfólk fær gott svigrúm til starfsþróunar.
- Ekki skemmir fyrir að Sambandið er heilsueflandi vinnustaður sem leggur áherslu á fjölskylduvænt umhverfi, boðið er upp á heilsustyrk.
- Jafnræðis er gætt í hvívetna við ráðningu og leitast er við að mannauður Sambandsins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Auglýsing birt24. júní 2024
Umsóknarfrestur7. júlí 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 30, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaFrumkvæðiJákvæðniSamviskusemiÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Schengen, fjármál og styrkir – er þetta starf fyrir þig?
Dómsmálaráðuneytið

Tvær stöður þjónustufulltrúa við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Bókari,launafulltrúi
Vörukaup ehf

Skrifstofustjóri
Lyfjafræðingafélag Íslands

Öflug manneskja í skrifstofuvinnu
Netkerfi og tölvur ehf.

Þjónusturáðgjafi
Teya Iceland

Verkefnastjóri NASF á Íslandi
NASF á Íslandi

Frábært skrifstofustarf í boði -Skrifstofa stéttarfélaganna-
Framsýn,stéttarfélag

Operations Manager
BusTravel Iceland ehf.

Móttöku og þjónustufulltrúi við Móttökustöðina á Strönd
Sorpstöð Rangárvallasýslu

Sölumaður - Prívat lúxusferðir
Deluxe Iceland

VR á Egilsstöðum
VR