Móttökuritari
Talþjálfun Reykjavíkur auglýsir laust til umsóknar hlutastarf (50 til 65%) ritara á stofu talmeinafræðinga sem verður staðsettur í móttöku hennar.
Leitað er að jákvæðum, lausnamiðuðum og skipulögðum einstaklingi með ríka þjónustulund til að sinna fjölbreyttum verkefnum.
Talþjálfun Reykjavíkur er stofa sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga sem sinna hvers kyns tal- og málmeinum barna og fullorðinna. Á stofunni starfa að jafnaði 12 til 16 talmeinafræðingar.
Símsvörun, móttaka skjólstæðinga og aðstandenda, umsjón biðlista, almenn skrifstofustörf, umsjón með biðstofu og önnur tilfallandi verkefni.
Tölvukunnátta æskileg (word, excel og outlook). Góð íslensku- og enskukunnátta nauðsynleg. Góð samskipta- og samstarfshæfni. Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.