Stoð
Stoð

Þjónustufulltrúi

Stoð leitar að áhugasömum og viðmótsgóðum einstaklingi til að ganga til liðs við þjónustudeild félagsins. Viðkomandi kemur til með að sinna margvíslegri þjónustu við viðskiptavini og samstarfsaðila Stoðar, meðal annars móttöku viðskiptavina, söluráðgjöf og úrlausn erinda sem berast í gegnum síma eða vef.

Viðkomandi þarf að vera lausnarmiðaður, hafa góða samskiptahæfni og faglega innsýn sem nýtist í ráðgjöf á heilbrigðistengdum vörum.

Jákvætt lífsviðhorf og áhugi fyrir teymisvinnu er krafa.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka viðskiptavina og ráðgjöf um vörur og heilbrigðistengdar lausnir
  • Upplýsingagjöf um vörur og þjónustu Stoðar
  • Samvinna við starfsfólk annarra deilda um úrlausn viðfangsefna
  • Úrlausn erinda sem berast í gegnum síma eða vef Stoðar
  • Ýmis tilfallandi verkefni svo sem tiltekt pantana úr vefverslun, umsjón með tímabókunum, framstilling, vörufrágangur og fleira.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi, sjúkraliðamenntun eða sambærilegt er kostur
  • Reynsla af störfum innan heilbrigðisgeirans og/eða áhugi á heilbrigðistengdri þjónustu
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
  • Frumkvæði, lausnarmiðuð hugsun og jákvætt lífsviðhorf
  • Skipulagshæfileikar og faglegur metnaður
  • Góð almenn tölvukunnátta
Auglýsing birt7. janúar 2025
Umsóknarfrestur20. janúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dragháls 14-16 14R, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar