

Lyfja Sauðárkróki - Umsjónarmaður verslunar
Við leitum að umsjónarmanni fyrir Lyfju Sauðárkróki
Við leitum að jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingi í starf umsjónarmanns í lyfjaverslun okkar á Sauðárkróki. Um er að ræða skemmtilegt starf í líflegu og faglegu umhverfi þar sem lögð er áhersla á frábæra þjónustu og velferð viðskiptavina. Við bjóðum upp á samkeppnishæf laun og gott vinnuumhverfi.
Hlutverk og ábyrgð:
- Yfirumsjón með verslun
- Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og lausasölulyfjum
- þjónusta og almenn afgreiðslustörf
Við leitum af einstaklingi sem hefur:
- Ríka þjónustulund og jákvætt og gott viðmót
- Skipulagshæfileika og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhuga á heilsu og vellíðan
- Áhuga á mannlegum samskiptum
- Góða almenna tölvukunnáttu
- Reynslu af verslunarstörfum (kostur)
- góða íslensku- og enskukunnáttu
Vinnutími:
er frá 10:00 - 18:00 virka daga eða eftir samkomulagi.
Hvers vegna Lyfja?
Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að lengja líf og bæta lífsgæði landsmanna. Við sameinum fagmennsku og hlýju í þjónustu okkar og vinnum stöðugt að nýsköpun og heilsueflingu.
Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir:
- jákvæðan starfsanda,
- tækifæri til að þróast í starfi,
- og getur nýtt hæfileika sína til fulls.
Við bjóðum upp á öfluga fræðslu, markvissa starfsþróun og leggjum ríka áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Lyfja rekur 45 apótek og útibú víðs vegar um landið og býður þar með fjölbreytt og spennandi starfsþróunartækifæri.
Nánari upplýsingar:
Friðþjófur Már Sigurðsson, lyfsali Lyfju Sauðárkróki 📞 453 5700 ✉️ [email protected].
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.




















