

Lyfjaútibú Blönduós - þjónusta og ráðgjöf
Við hjá Lyfju á Sauðárkróki leitum að jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingi í þjónustu- og afgreiðslustarf í útibúi okkar á Blönduósi.
Um er að ræða skemmtilegt starf í líflegu og faglegu umhverfi þar sem lögð er áhersla á frábæra þjónustu og velferð viðskiptavina. Við bjóðum upp á samkeppnishæf laun og jákvætt vinnuumhverfi.
Hlutverk og ábyrgð:
- Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og lausasölulyfjum
- þjónusta og almenn afgreiðslustörf
- Áfyllingar í verslun
- Afhending lyfja gegn lyfseðli
Við leitum af einstaklingi sem hefur:
- Ríka þjónustulund og jákvætt og gott viðmót
- Áhuga á heilsu og vellíðan
- Áhuga á mannlegum samskiptum
- Reynslu af verslunarstörfum (kostur)
- góða íslensku- og enskukunnáttu
Vinnutími:
Starfið er dagvinna, alla virka daga kl. 10:00–16:00.
Hvers vegna Lyfja?
Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að lengja líf og bæta lífsgæði landsmanna. Við sameinum fagmennsku og hlýju í þjónustu okkar og vinnum stöðugt að nýsköpun og heilsueflingu.
Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir:
- jákvæðan starfsanda,
- tækifæri til að þróast í starfi,
- og getur nýtt hæfileika sína til fulls.
Við bjóðum upp á öfluga fræðslu, markvissa starfsþróun og leggjum ríka áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Lyfja rekur 45 apótek og útibú víðs vegar um landið og býður þar með fjölbreytt og spennandi starfsþróunartækifæri.
Umsækjendur þurfa að vera 18 ára eða eldri.
Nánari upplýsingar veitir Friðþjófur Már Sigurðsson, lyfsali í Lyfju Sauðárkróki, s. 543 5700 / [email protected]













