

Lyfja Stykkishólmi - Sala og þjónusta
Viltu taka vaktina hjá Lyfju í Stykkishólmi?
Við leitum að starfsmanni í sölu- og afgreiðslustörf. Starfið felst í almennri afgreiðslu og ráðgjöf til viðskiptavina um vörur verslunarinnar. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf á líflegum vinnustað þar sem boðið er upp á samkeppnishæf laun og gott vinnuumhverfi.
Helstu verkefni:
- Almenn afgreiðslustörf
- Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
- Afgreiðsla á kassa
- Afhending lyfja gegn lyfseðli
- Afgreiðsla á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra
Hæfniskröfur:
- Rík þjónustulund
- Áhugi á mannlegum samskiptum
- Jákvæðni og gott viðmót
- Geta til að starfa undir álagi
- Reynsla af verslunarstörfum er kostur
- Áhuga á heilbrigði og vellíðan
Starfið:
- Vinnutími er frá kl. 12–18 á virkum dögum. Umsækjendur þurfa að hafa góða íslensku- og enskukunnáttu og vera að minnsta kosti 18 ára.
Nánari upplýsingar veitir Bjarne Omar Nielsen, lyfsali hjá Lyfju í Stykkishólmi Sími: 438 1141 | Netfang: [email protected]
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Hvers vegna Lyfja?
Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að lengja líf og bæta lífsgæði landsmanna. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu, heilsueflingu og stöðuga nýsköpun.Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu, markvissa starfsþróun og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs.Lyfja rekur 45 apótek og útibú víðs vegar um landið, sem gefur starfsfólki kost á fjölbreyttum og spennandi tækifærum, hvar sem er á landinu.













