
Kennsluráðgjafi í grunnskólum
Skóla- og frístundaskrifstofa á Vesturmiðstöð auglýsir stöðu kennsluráðgjafa í grunnskólahluta lausa til umsóknar. Um er að ræða 100% starf. Til stendur að ráða sem fyrst í stöðuna.
Skóla- og frístundaskrifstofa á Vesturmiðstöð var stofnuð í janúar 2021 í tengslum við verkefnið Betri borg fyrir börn sem nálgast má meiri upplýsingar um á vefnum reykjavik.is/betri-borg-fyrir-born. Á Vesturmiðstöð starfar öflugur hópur fagfólks sem sinnir þjónustu við leik- og grunnskóla og frístundastarf í Miðborg, Vesturbæ og Hlíðum.
Vesturmiðstöð er framsækinn vinnustaður sem býður upp á spennandi tækifæri til að taka þátt í þverfaglegu samstarfi og uppbyggingu á þjónustu við börn og starfsfólk grunnskóla í borgarhlutanum. Í boði er vinna með metnaðarfullum hópi sérfræðinga skóla- og frístundaþjónustu og velferðarsviðs. Á miðstöðinni starfa meðal annars talmeinafræðingar, sálfræðingar, félagsráðgjafar og kennslu- og hegðunarráðgjafar og ráðgjafarþroskaþjálfi, að málefnum barna, skóla og fjölskyldna í borgarhlutanum.
Við leitum að fagmanni til að vinna með okkur að þróun verkefnisins Betri borg fyrir börn með það að markmiði að koma sem best til móts við þarfir barna í hverfinu.
Vesturmiðstöð er staðsett að Laugavegi 77 og er fagleg samvinna sérfræðinga skóla- og frístundaskrifstofu og velferðarsviðs mikil og náin. Kennsluráðgjafi vinnur samkvæmt stefnu Reykjavíkurborgar í menntamálum Látum draumana rætast.











