Kennarar í Gerðaskóla skólaárið 2024-2025
Gerðaskóli auglýsir eftir kennurum í eftirfarandi lausar stöður fyrir skólaárið 2024-2025.
- Heimilisfræðikennari í 100 %
- Umsjónarkennari á miðstigi í 100%
- Sérkennari í námsveri í 100%
- Umsjónarkennari á yngsta stigi í 100%
- Kennari á unglingastigi í 100%
- Náms- og starfsráðgjafi, tengiliður farsældar - afleysing skólaárið 2023-2024 í 100%
Gerðaskóli leitar eftir metnaðarfullum kennurum sem vilja ná góðum árangri í skólastarfi. Ráðið er í laus störf frá 1.ágúst 2024.
Í Gerðaskóla eru um 250 nemendur. Við skólann starfa áhugasamir og metnaðarfullir starfsmenn. Lögð er áhersla á að skapa námsumhverfi þar sem allir eru virkir, öllum líði vel og allir læri að bera virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu.
Gildi skólans eru; virðing – ábyrgð - árangur – ánægja
Skólinn er heilsueflandi grunnskóli sem vinnur eftir stefnunni Jákvæður agi með það að markmiði að allir fái tækifæri til að vera besta útgáfan af sjálfum sér í leik og starfi. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans, www.gerdaskoli.is
- Leyfisbréf kennara (fylgi með umsókn)
- Reynsla af kennslu í grunnskóla kostur
- Metnaður og áhugi til að mæta ólíkum nemendum á faglegan, fjölbreyttan og skapandi hátt
- Áhugi og metnaður fyrir góðum foreldrasamskiptum
- Hæfni í mannlegum samskiptum og lausnaleit
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Góð íslenskukunnátta skilyrði