Suðurnesjabær
Suðurnesjabær

Kennarar í Sandgerðisskóla skólaárið 2024-2025

Sandgerðisskóli auglýsir eftir kennurum í eftirfarandi lausar stöður fyrir skólaárið 2024-2025

  • Umsjónarkennari á miðstigi í 100% starf
  • Kennari í sjónlistum í 100% starf
  • Smíðakennari í 100% starf
  • Kennari á unglingastigi í 100% starf

Sandgerðisskóli leitar að metnaðarfullum kennurum sem vilja ná góðum árangri í skólastarfi. Ráðið er í stöðurnar frá 1.ágúst 2024. Við leggjum áherslu á vellíðan og framfarir nemenda, gott samstarf innan skólans og við samfélagið. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn að setja sig inn í starfshætti skólans, vinna í teymi að því að mæta ólíkum einstaklingum á faglegan, fjölbreyttan og skapandi hátt.

Sandgerðisskóli er vel búinn, heildstæður fjölmenningarlegur grunnskóli með um 320 nemendur og við skólann starfar samheldinn hópur metnaðarfullra starfsmanna. Áhersla er lögð á náið samstarf er við Leikskólann Sólborg, félagsmiðstöðina Skýjaborg og Tónlistarskóla Sandgerðis. Gildi skólans eru; vöxtur – virðing – vilji – vinátta.

Skólinn er heilsueflandi grunnskóli sem vinnur eftir stefnu Uppeldis til ábyrgðar með það að markmiði að allir fái tækifæri til að vera besta útgáfan af sjálfum sér í leik og starfi. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans, www.sandgerdisskoli.is

Menntunar- og hæfniskröfur
  •  Leyfisbréf kennara (fylgi með umsókn)
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla kostur
  •  Metnaður og einlægur áhugi á að vinna með börnum og unglingum á faglegan, fjölbreyttan og skapandi hátt
  •  Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
  •  Áhugi og metnaður fyrir góðum foreldrasamskiptum.
  •  Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  •  Skapandi hugsun og áhugi á að starfa í metnaðarfullu umhverfi.
  •  Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Auglýsing stofnuð23. apríl 2024
Umsóknarfrestur7. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Skólastræti 1, 245 Sandgerði
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar