Leikskólinn Jötunheimar
Leikskólinn Jötunheimar
Leikskólinn Jötunheimar

Íþróttafræðingur/Íþróttakennari

Leikskólinn Jötunheimar auglýsir eftir íþróttafræðingi/íþróttakennara frá og með 7. ágúst 2025 í fullt starf. Hlutastarf kemur til greina.

Leitað er að íþróttafræðingi/íþróttakennara sem hefur áhuga á að starfa í leikskóla þar sem fram fer faglegt leikskólastarf með áherslu er á leik, samvinnu, traust og gleði. Í leikskólanum Jötunheimum er virkt lærdómssamfélag og teymisvinna en ásamt því er leikskólinn einnig Heilsueflandi leikskóli.

Íþróttafræðingur/íþróttakennari starfar samkvæmt stefnumörkun leikskólans sem tekur meðal annars mið af menntastefnu Sveitarfélagsins Árborgar, aðalnámskrá leikskóla, lögum og reglugerðum um leikskóla og öðrum lögum er við eiga.

Um er að ræða gefandi og skemmtilegt starf í góðu starfsumhverfi barna og kennara. Í stefnu skólans er unnið með leik barna, heilsueflingu, jákvæð og uppbyggjandi samskipti og umhyggjusamt námsumhverfi. Einkunnarorð leikskólans er Leikurinn á vísdóm veit.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu undir stjórn deildarstjóra og/eða skólastjórnenda.
  • Að fylgist vel með velferð leikskólabarna og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
  • Að læra um og tileinka sér stefnu og starfsaðferðir skólans
  • Sinna daglegum verkefnum deildarinnar í samstarfi við stjórnendur og aðra starfsmenn
  • Taka þátt í teymisvinnu, skipulagningu, þróun og nýbreytni starfsins í samstarfi við stjórnendur
  • Að taka þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
  • Tileinka sér jákvæð samskipti og samvinnu við samstarfsfólk og foreldra
  • Tileinka sér stundvísi, góða viðveru og jákvæð viðhorf til barna, samstarfsfólks og foreldra.
  • Situr starfsmannafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi leikskólans.
  • Að efla og viðhalda fagþekkingu sinni með reglubundinni endur- og símenntun.
  • Að sinna þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun leikskólabarna sem yfirmaður felur honum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf leikskólakennara.
  • Leyfisbréf til kennslu.
  • Reynsla í leikskólastarfi æskileg.
  • Færni í mannlegum samskiptum.  
  • Reynsla, hæfni og áhugi í starfi með börnum.  
  • Jákvæðni, frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Færni til að tjá sig í ræðu og riti.  
  • Góð íslenskukunnátta æskileg.
Fríðindi í starfi
  • Styttri vinnuvika
Auglýsing birt1. apríl 2025
Umsóknarfrestur21. apríl 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Norðurhólar 3, 800 Selfoss
Heiðarstekkur 10
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar