

Hjúkrunarfræðingur í verkefnavinnu samhliða klínisku starfi á smitsjúkdómadeild
Við óskum eftir hjúkrunarfræðingi til starfa á smitsjúkdómadeild A7 í Fossvogi til þess að sinna ákveðinni verkefnavinnu á deild, samhliða klínísku starfi. Verkefnavinnan er unnin í dagvinnu og svo klíníska starfið í vaktavinnu. Starfshlutfall er samkomulag en helst er horft til þess að ráða einstakling í fullt starf.
Deildin er 20 rúma sólarhringsdeild ætluð sjúklingum með bráð vandamál á sviði lyflækninga. Deildin sérhæfir sig í smitsjúkdómum en sjúklingahópurinn er fjölbreyttur og gefast því góð tækifæri til starfsþróunar og að öðlast fjölþætta reynslu. Á deildinni starfa um 70 einstaklingar í virku þverfaglegu samstarfi og unnið er markvisst að faglegri þróun. Starfsandi á deildinni er sérlega góður og spennandi námstækifæri framundan. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum einstaklingshæfða aðlögun.
Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs Landspítala.
-
Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð
-
Virk þátttaka í þróun og umbótum í starfi deildarinnar
-
Fylgjast með nýjungum í hjúkrun
-
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
-
Verkefnavinna s.s. stuðningur við starfsfólk og vaktaskýrslugerð
-
Íslenskt hjúkrunarleyfi
-
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
-
Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
-
Hæfni og geta til að starfa í teymi
-
Góð íslenskukunnátta
Íslenska


























































