Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Garðabæ

Heilsugæslan Garðabæ auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í ótímabundið í starf. Starfshlutfall er 70-100%. Æskilegt er að viðkomandi hefji störf 1.september nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Megin starfssvið er skólaheilsugæsla ásamt hjúkrunarmóttöku. Um er að ræða spennandi starfsvettvang fyrir hjúkrunarfræðinga sem hafa áhuga á að taka þátt í þróun heilsugæsluhjúkrunar. Á Heilsugæslunni Garðabæ eru starfandi sérfræðingar í heimilislækningum, hjúkrunarfræðingar, ljósmæður, sjúkraþjálfari ásamt sálfræðingum og riturum.

Heilsugæslunni er ætlað að veita íbúum almenna, samfellda og aðgengilega heilbrigðisþjónustu. Starfsemi heilsugæslunnar er í örri framþróun þar sem áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu. Á Heilsugæslunni Garðabæ starfa læknar, hjúkrunarfræðingar, ljósmæður, sálfræðingur, hreyfistjóri og ritarar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Megin starfssvið er hjúkrunarmóttaka ásamt skólaheilsugæslu.

Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni. 

Starfssvið í móttöku er mjög víðtækt, allt frá símaráðgjöf til bráðaþjónustu. Hjúkrunarmóttakan sinnir fólki á öllum aldri og skiptist í opna móttöku, bókaða móttöku og símaráðgjöf. Í opinni móttöku er tekið á móti bráðaerindum, í bókaðri móttöku er tekið á móti erindum sem eru ekki bráð s.s. ferðamannaheilsuvernd og sárameðferð. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Reynsla af fjölskylduhjúkrun æskileg
  • Áhugi og vilji til að vinna með börnum og fjölskyldum
  • Færni í fyrirlestrahaldi
  • Þekking á réttindum barna
  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu
  • Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur
  • Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Góð tölvukunnátta
Auglýsing stofnuð24. júní 2024
Umsóknarfrestur8. júlí 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.HjúkrunarfræðingurPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar